Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 162 B gamma fol.

Njáls saga ; Ísland, 1315-1335

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Njáls saga
Athugasemd

Fimm brot.

1.1 (1r-1v)
Enginn titill
Niðurlag

smıþıt ok felldı ſvmt

1.2 (2r-2v)
Enginn titill
Niðurlag

ſy ıaþı hann míok ok bað

1.3 (3r-3v)
Enginn titill
Niðurlag

at ver arım at

1.4 (4r-4v)
Enginn titill
Niðurlag

þa quaddı N ıall ſer lıoðſ

1.5 (5r-5v)
Enginn titill
Niðurlag

Rıð nv hoskvldr heım

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
5 blöð (272 null x 206 null).
Umbrot

Ástand

Víða eru göt í skinninu og um það bil helmingur af ytri dálki bl. 5 hefur verið skorinn burt.

Skreytingar

Kaflafyrirsagnir með rauðu bleki.

Upphafsstafir í ýmsum litum.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Árni Magnússon bætir við upplýsingum um feril á spássíu 4r.

Band

Band frá nóvember 1965. Pappakápa. Blöð fest á móttök.

Fylgigögn

Umslag með hendi Árna Magnússonar. Fastur seðill (70 mm x 114 mm) með hendi Árna Magnússonar: Úr Njáls sögu. Ekki þeirri sem átt hefur Finnur á Kálfalæk (Þórður Steindórsson) observai accuraté.

Uppruni og ferill

Uppruni

Blöðin eru tímasett til fyrri hluta 14. aldar í  Katalog I , bls. 118, en c1325 í  ONPRegistre , bls. 434.

Ferill

Árni Magnússon fékk frá Jóni Hannessyni í Reykjarfirði 1712, en hann hafði fengið frá Ásgeiri Sigurðssyni á Ósi í Steingrímsfirði (bl. 4r).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. júlí 1973.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 117-21 (nr. 199). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885. Haraldur Bernharðsson tölvuskráði í febrúar 2001.

Viðgerðarsaga

Gert við og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1965.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.

Notaskrá

Höfundur: Einar Ól. Sveinsson
Titill: Skírnir, Um handrit Njálssögu
Umfang: 126
Höfundur: Einar Ól. Sveinsson
Titill: , Studies in the manuscript tradition of Njálssaga
Umfang: 13
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Lýsigögn
×

Lýsigögn