Tvídálka.
Blaðið er skemmt og skorið hefur verið ofan af því.
Eyður fyrir fyrirsagnir.
Eyður fyrir upphafsstafi.
Neðst fyrir miðju á 1r hefur Árni Magnússon skrifað: ur Egils Sỏgu.
Band frá 1995. Pappakápa, bl. fest á móttök inn í japanpappír.
Blaðið er tímasett til 15. aldar í Katalog I , bls. 116 (sjá einnig ONPRegistre , bls. 434).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. september 1996.
Tekið eftir Katalog I , bls. 114-17 (nr. 198). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885. Haraldur Bernharðsson tölvuskráði í febrúar 2001.
Gert við og bundið í Kaupmannahöfn í júní til nóvember 1995. Í öskju með brotum úr níu öðrum handritum. Með fylgdi nákvæm lýsing á viðgerðum og ljósmyndun.