Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 160 fol.

Sögubók ; Ísland, 1635-1648

Athugasemd
Árni Magnússon lét Jón Torfason skrifar upp eftir þessu handriti Harðar sögu í AM 498 4to, Króka-Refs sögu í AM 506 4to, Víglundar sögu í AM 512 4to. Aðrar sögur lét Árni bera saman við ýmis handrit.
Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-24r)
Svarfdæla saga
Titill í handriti

Hér byrjar Svarfdælinga sögu

Upphaf

Það er upphaf þessarar sögu …

Niðurlag

… Ljótur lét drepa Eglu-Halla bróður Karls unga.

Baktitill

Nú lýkur hér Svarfdæla sögu með þvílíku efni.

Athugasemd

Auð blöð vegna eyðu í forriti: 6v að mestu, 7r-10v, 11v og 12v að mestu, neðri helmingur 14r og 21v.

2 (25r-54v)
Gísla saga Súrssonar
Titill í handriti

Saga af Gísla Súrssyni

Vensl

Styttri gerð sögunnar, líklega skrifuð eftir AM 148 fol. (sbr. seðil).

Upphaf

Það er upphaf á sögu þessi …

Niðurlag

… og eru menn komnir frá honum.

Baktitill

Lúku vær hér sögu Gísla Súrssonar. Guð gefi alla góða daga utan enda. AMEN.

3 (55r-69v)
Orms þáttur Stórólfssonar
Titill í handriti

Söguþáttur af Ormi Stórólfssyni

Upphaf

[H]ængur hét maður son Ketils Naumdæla …

Niðurlag

… og hélt vel trú sína.

Baktitill

Og lýkur þar þætti Orms Stórólfssonar.

4 (75r-114v)
Harðar saga
Titill í handriti

Saga af Hörð og hans fylgjurum þeim Hólmverjum

Upphaf

[Á] dögum Haralds hins hárfagra …

Niðurlag

…eftir öngvan mann sekan hafi jafnmargir í hefnd verið drepnir sem Hörð.

Baktitill

Lúkum vér svo sögu Hólmverja.

5 (115r-146r)
Króka-Refs saga
Titill í handriti

Saga af Króka-Ref

Upphaf

[Á] dögum Hákonar kóngs Aðalsteinsfóstra …

Niðurlag

… Og er margt göfugra manna frá honum komið.

Baktitill

Og lúkum vér þar sögu Króka-Refs.

6 (146r-v)
Um Grænlands byggð
Upphaf

Grænland var byggt af Eiríki hinum rauða …

Niðurlag

… biskupsstóll þar.

Skrifaraklausa

Þessi saga finnst miklu lengri í þeim gömlu bókum heldur en hér er rituð.

Athugasemd

Stutt annálskennd klausa.

7 (149r-208r)
Víga-Glúms saga
Titill í handriti

Hér byrjar Glúms sögu

Upphaf

[H]elgi hét maður og var kallaður Helgi hinn magri …

Niðurlag

… að hann hafi verið best um sig allra vígra manna hér á landi.

Baktitill

Og lýkur þar sögu Glúms Eyjólfssonar.

8 (209r-253v)
Hávarðar saga Ísfirðings
Titill í handriti

Sagan af Hávarði Ísfirðingi og syni hanss Ólafi Bjarnyl

Upphaf

[Þ]að er upphaf þessarar sögu að Þorbjörn hét maður …

Niðurlag

… Og þótti verið hafa hið mesta mikilmenni.

Baktitill

Og lúku vér þar nú þessari sögu að sinni með þessu efni.

Athugasemd

Auð bl. vegna eyðu í forriti: 216v að mestu og 217r.

9 (258r-298r)
Víglundar saga
Titill í handriti

Víglundar saga

Upphaf

[H]araldur hinn hárfagri var son Hálfdanar svarta …

Niðurlag

… að enginn veit sína ævina fyrr en öll er.

Baktitill

Endar hér nú þessi saga af Víglundi hinum væna.

10 (300r-333r)
Hallfreðar saga vandræðaskálds
Titill í handriti

Hér byrjar Hallfreðs sögu

Upphaf

[Þ]orvaldur hét maður og var kallaður skiljandi …

Niðurlag

… og er margt manna frá honum komið.

Baktitill

Og lýkur hér sögu Hallfreðs vandræðaskálds.

11 (336r-344v)
Ölkofra þáttur
Titill í handriti

Þáttur af Ölkofra

Upphaf

[Þ]órhallur hét maður, hann bjó á Bláskógum …

Niðurlag

… og hélst það meðan þeir lifðu.

Baktitill

Og lýkur hér sögu Ölkofra.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki með ljóni í tvöföldum ramma með blómum og kóróna efst // Ekkert mótmerki (fastur seðill, bæði fremst og aftast í handriti).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Fangamark HH // Ekkert mótmerki (fastur seðill fremst í handriti).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Dárahöfuð 1 // Mótmerki: Fangamark IV ( 1-4 , 13 , 14 , 15-20 ).

Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Dárahöfuð 1, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir // Ekkert mótmerki ( 5 , 6-10 , 11-12 , 21-24 , 30-38 , 45-49 ).

Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Dárahöfuð 2, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 stórir hringir, stafur og fangamark OH? DH? // Ekkert mótmerki ( 40 ).

Vatnsmerki 6. Aðalmerki: Dárahöfuð 3, með 4 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 meðalstórar bjöllur // Ekkert mótmerki ( 55-57 , 60-61 , 68-69 , 72-74 , 115-116 , 120-123 , 125-129 , 137-139 , 143-145 , 147 , 209 , 214-217 , 220 , 223 , 225-226 , 228-229 , 231-233 , 239 , 241-242 , 244 , 247 , 250-251 , 253 , 257 ).

Vatnsmerki 7. Aðalmerki: Dárahöfuð 4, með 5 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 stórir hringir og stafur // Ekkert mótmerki ( 77-78 , 80 , 83-84 , 87 , 90 , 93 , 94 , 96 , 98 , 100 , 102 , 104 , 106 , 108-109 , 112 , 114 , 149-150 , 153 , 155-156 , 160-161 , 163 , 165 , 168-169 , 171 , 173 , 175 , 177 , 179-181 , 183 , 185 , 191-193 , 197-200 , 202-203 , 206 , 258 , 263-266 , 268 , 270 , 273-274 , 276 , 279 , 283-285 , 287 , 291 , 293 , 295 , 300-301 , 304 , 307 , 312? , 313-314 , 318-323 , 333-335 , 337-340 ).

Blaðfjöldi
iii + 344 + iii blöð (288 mm x 196 mm). Auð blöð: Neðri hluti bl. 24r, 24v, 70r-74v, 147r-148v, 208v, 254r-257v, 298v-299v, 334r-335v.
Tölusetning blaða

  • Handritið hefur verið blaðmerkt síðar, að jafnaði á fimmta hverju blaði.
  • Síðar hefur það verið blaðmerkt með rauðu bleki 1-344.

Kveraskipan

39 kver:

  • I: spjaldblað - fremra saurblað 3 (eitt tvinn + eitt blað + eitt tvinn + tvö blöð: spjaldblað+fremra saurblað 1, fylgigögn 1, fylgigögn 2+fylgigögn 3,fremra saurblað 2,fremra saurblað 3)
  • II: bl. 1-8 (4 tvinn: 1+8, 2+7, 3+6, 4+5)
  • III: bl. 9-16 (4 tvinn: 9+16, 10+15, 11+14, 12+13)
  • IV: bl. 17-24 (4 tvinn: 17+24, 18+23, 19+22, 20+21)
  • V: bl. 25-34 (5 tvinn: 25+34, 26+33, 27+32, 28+31, 29+30)
  • VI: bl. 35-44 (5 tvinn: 35+44, 36+43, 37+42, 38+41, 39+40)
  • VII: bl. 45-54 (5 tvinn: 45+54, 46+53, 47+52, 48+51, 49+50)
  • VIII: bl. 55-64 (5 tvinn: 55+64, 56+63, 57+62, 58+61, 59+60)
  • IX: bl. 65-74 (5 tvinn: 65+74, 66+73, 67+72, 68+71, 69+70)
  • X: bl. 75-84 (5 tvinn: 75+84, 76+83, 77+82, 78+81, 79+80)
  • XI: bl. 85-94 (5 tvinn: 85+94, 86+93, 87+92, 88+91, 89+90)
  • XII: bl. 95-104 (5 tvinn: 95+104, 96+103, 97+102, 98+101, 99+100)
  • XIII: bl. 105-114 (5 tvinn: 105+114, 106+113, 107+112, 108+111, 109+110)
  • XIV: bl. 115-124 (5 tvinn: 115+124, 116+123, 117+122, 118+121, 119+120)
  • XV: bl. 125-134 (5 tvinn: 125+134, 126+133, 127+132, 128+131, 129+130)
  • XVI: bl. 135-144 (5 tvinn: 135+144, 136+143, 137+142, 138+141, 139+140)
  • XVII: bl. 145-148 (2 tvinn: 145+148, 146+147)
  • XVIII: bl. 149-158 (5 tvinn: 149+158, 150+157, 151+156, 152+155, 153+154)
  • XIX: bl. 159-168 (5 tvinn: 159+168, 160+167, 161+166, 162+165, 163+164)
  • XX: bl. 169-178 (5 tvinn: 169+178, 170+177, 171+176, 172+175, 173+174)
  • XXI: bl. 179-188 (5 tvinn: 179+188, 180+187, 181+186, 182+185, 183+184)
  • XXII: bl. 189-198 (5 tvinn: 189+198, 190+197, 191+196, 192+195, 193+194)
  • XXIII: bl. 199-208 (5 tvinn: 199+208, 200+207, 201+206, 202+205, 203+204)
  • XXIV: bl. 209-218 (5 tvinn: 209+218, 210+217, 211+216, 212+215, 213+214)
  • XXV: bl. 219-228 (5 tvinn: 219+228, 220+227, 221+226, 222+225, 223+224)
  • XXVI: bl. 229-238 (5 tvinn: 229+238, 230+237, 231+236, 232+235, 233+234)
  • XXVII: bl. 239-248 (5 tvinn: 239+248, 240+247, 241+246, 242+245, 243+244)
  • XXVIII: bl. 249-257 (4.5 tvinn: )
  • XXIX: bl. 258-267 (5 tvinn: 258+267, 259+266, 260+265, 261+264, 262+263)
  • XXX: bl. 268-277 (5 tvinn: 268+277, 269+276, 270+275, 271+274, 272+273)
  • XXXI: bl. 278-287 (5 tvinn: 278+287, 279+286, 280+285, 281+284, 282+283)
  • XXXII: bl. 288-297 (5 tvinn: 288+297, 289+296, 290+295, 291+294, 292+293)
  • XXXIII: bl. 298-299 (1 tvinn: 298+299)
  • XXXIV: bl. 300-309 (5 tvinn: 300+309, 301+308, 302+307, 303+306, 304+305)
  • XXXV: bl. 310-319 (5 tvinn: 310+319, 311+318, 312+317, 313+316, 314+315)
  • XXXVI: bl. 320-329 (5 tvinn: 320+329, 321+328, 322+327, 323+326, 324+325)
  • XXXVII: bl. 330-335 (3 tvinn: 330+335, 331+334, 332+333)
  • XXXVIII: bl. 336-345 (5 tvinn: 336+345, 337+344, 338+343, 339+342, 340+341)
  • XXXIX: aftara saurblað 1 - spjaldblað (tvö tvinn: aftara saurblað 1+aftara saurblað 2, aftara saurblað 3+spjaldblað)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur á bl. 1r-54v er ca 232-244 mm x 144-148 mm.
  • Leturflötur á bl. 55r-344v er ca 210-220 mm x 110 mm.
  • Línufjöldi er ca 35-36 á bl. 1r-24r, 27-30 á bl. 25r-54v og 21-23 á bl. 55r-344v.
  • Síðutitlar.
  • Eyður fyrir upphafsstöfum á bl. 55r, 75r, 115r, 149r, 209r, 258r, 300r, 336r.
  • Griporð á 1r-53v.
  • Sögulok enda í totu.

Ástand

  • Skorið hefur verið ofan af handritinu við band og hefur síðutitill skerst örlítið við það á bl. 1-3.
  • Leturflötur hefur dökknað vegna bleksmits. Bleksmitun í gegn sums staðar (sjá til dæmis bl. 117-162 og víðar).

Skrifarar og skrift
Þrjár hendur.

I: bl. 1-24r með hendi Páls Sveinssonar, blendingsskrift.

II: bl. 25r-54v með hendi Kolbeins Hannessonar, kansellískrift.

III: bl. 55r-344v með hendi Jóns Erlendssonar í Villingaholti, blendingsskrift.

Skreytingar

Pennaflúraðir og fylltir upphafsstafir kafla á bl. 1r-54r. Örlítið pennaflúraðir upphafsstafir á bl. 56v-69r og víðar.

Teiknað andlit í staf á bl. 25r, 28r, 41v-42r, 43v, 54r.

Skrautbekkur efst á bl. 1r.

Örlítið pennaflúr um griporð á bl. 1r-53v.

Baktitill á bl. 54v er með stærra letri og blekfylltum stöfum.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Áherslumerki á bl. 28r, 39r, 146v. Frá bl. 265v eru víða X á spássíum og strikað undir orð og setningar.
  • Spássíuleiðréttingar með yngri hendi, einkum í síðustu köflum Króka-Refs sögu (bl. 141v-146v).
  • Spássíugreinar á bl. 20r, 228v og 269r.

Band

Flauelsband (303 mm x 202 mm x 67 mm) sem hefur upprunalega verið með gylltu skrauti og böndum. Handritablokkin er með gylltu rósamynstri. Spjaldblöð eru með marmaramynstri sem og fremsta saurblað rektó og aftasta saurblað versó. Handritið liggur í öskju.

Fylgigögn

Þrír fastir seðlar (163 mm x 106 mm) fremst með efnisyfirliti og athugasemdum Árna Magnússonar: Pappírsbók í folio hjá hans höj excellence hr. Ulr. Chr. Güldenleuve inniheldur. 1. Svarfdæla sögu, eins og almennilegar og sums staðar rangt skrifaða, er (sem mér sýnist) með hendi Páls Sveinssonar að vísu með þeirri sömu hendi sem Njáls saga Brynjólfs Þórðarsonar er með rituð. Hana þarf ég ekki hér eftir að sjá. 2. Gísla saga Súrssonar skrifaða (sem auðséð er) eftir bók séra Þórðar Jónssonar á Staðarstað in folio með hendi séra Jóns í Villingaholti eða öðru exemplare. Er rituð hér með hendi Kolbeins Hannessonar. 3. Söguþátt af Ormi Stórólfssyni með hendi séra Jóns í Villingaholti. Er álíka og sú er ég hefi með hendi Ásgeirs eftir membrana regia. Ég hefi látið þennan conferera við þá grænu bók í fol. frá Breiðabólstað í Fljótshlíð. 4. Sögu af Herði og Hólmverjum með hendi séra Jóns í Villingaholti, hana hefi ég héðan uppskrifaða með hendi Jóns Torfasonar. 5. Króka-Refs sögu með sömu hendi séra Jóns, hana hefi ég sömuleiðis héðan uppskrifaða með hendi Jóns Torfasonar. 6. Glúms sögu með hendi séra Jóns í Villingaholti. Hana hefi ég látið conferera við Glúms sögu með hendi Jóns Gissurssonar úr bók er ég fékk af séra Högna Ámundasyni. 7. Sögu af Hávarði Ísfirðing og Ólafi Bjarnyl með hendi séra Jóns í Villingaholti, vantar nokkuð lítið í miðjuna. Hana hefi ég látið conferera við óinnbundið exemplar frá Skarði á Skarðsströnd. 8. Víglundar sögu með hendi séra Jóns í Villingaholti. Hana hefi ég síðan útskrifaða með hendi Jóns Torfasonar. 9. Hallfreðar sögu með hendi séra Jóns í Villingaholti, hana hefi ég samanbera látið við hönd Eyjólfs Björnssonar í 4to. 10. Ölkofra sögu með hendi séra Jóns í Villingaholti. Hana hefi ég samanlesa látið við grei=exemplar í 4to sem ég á.

Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi, líklega fyrir Brynjólf Sveinsson biskup einhvern tíma á árabilinu 1635-1648 (sbr. óprentaðan lista SÁM-handrita). Handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 112.

Ferill

Handritið var í eigu Ulrik Christian Gyldenløve stiftamtmanns, áður en það kom til Árna Magnússonar (sbr. seðil, einnig seðil í AM 164 a fol..

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. mars 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • EM skráði kveraskipan 20. júní 2023.
  • ÞÓS skráði vatnsmerki 20. júlí 2020.
  • ÞS skráði samkvæmt TEI P5 6.-9. desember 2009.
  • DKÞ færði inn grunnupplýsingar 25. júní 2002.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 5. desember 1885 (sjá  Katalog I 1889:112-113 (nr. 196). ).

Viðgerðarsaga

Viðgert af Birgitte Dall í febrúar 1975 (kjölur styrktur).

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Negatíf örfilma frá 1994 á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi (askja 420).

Notaskrá

Titill: , Membrana Regia Deperdita
Ritstjóri / Útgefandi: Loth, Agnete
Umfang: 5
Höfundur: Bjarni Einarsson
Titill: , Hallfreðar saga
Umfang: 15
Titill: , Havarðar saga Ísfirðings
Ritstjóri / Útgefandi: Björn K. Þórólfsson
Umfang: 47
Höfundur: Slay, Desmond
Titill: , On the origin of two Icelandic manuscripts in the Royal Library in Copenhagen
Umfang: s. 143-150
Höfundur: Hansen, Finn
Titill: Arkiv för nordisk filologi, Forstærkende led i norrønt sprog
Umfang: 98
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Höfundur: Jón Helgason
Titill: , Sylloge sagarum. Resenii bibliotheca. Vatnshyrna
Umfang: s. 9-53
Titill: Rit Handritastofnunar Íslands, Svarfdæla saga
Ritstjóri / Útgefandi: Jónas Kristjánsson
Umfang: 2
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Loth, Agnete
Titill: , Sønderdelte arnamagnæanske papirhåndskrifter
Umfang: s. 113-142
Titill: Sigurðar saga þögla. The shorter redaction
Ritstjóri / Útgefandi: Driscoll, Matthew James
Umfang: s. clxvi, 67 p.
Titill: , Króka-refs saga og Króka-Refs rímur
Ritstjóri / Útgefandi: Pálmi Pálsson
Umfang: 10
Titill: , Harðar saga
Ritstjóri / Útgefandi: Hast, Sture
Umfang: 6
Lýsigögn
×

Lýsigögn