Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellískrift.
Band frá 1910-1920 (320 mm x 207 mm x 21 mm). Pappaspjöld klædd pappír með brúnu marmaramynstri, bókfell á kili.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti. Þau blöð voru fjarlægð af Kristian Kålund marmarapappír settur í staðinn. Blöð úr bókfellinu er nú í AM Access. 7 (Hs 122).
Seðill á saurblaði 1r (165 mm x 180 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Saga Þorgeirs og Þormóðar Kolbrúnarskálds. Fragment sögu Þorsteins Síðu-Hallssonar. Eftir membrana regia in 4to stóð framan á bókinni með hendi Ásgeirs Jónssonar. Úr númer 12 frá sál. assessor Thormod Torvesens enke 1720.“
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I, bls. 101, en virkt skriftartímabil Ásgeirs Jónssonar var ca 1686-1707.
Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 207 fol. og AM 224 fol. (sbr. AM 435 b 4to, bl. 5v).
Handritið er uppskrift eftir skinnhandriti sem var í Konungsbókhlöðu (sbr. seðil) en er nú glatað.
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XII fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. seðil og AM 435 b 4to, bl. 5v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.
„Saga frá Þorgeiri og Þormóði Kolbrúnarskáldi“
„Á dögum hins helga Ólafs konungs …“
„… svo mundi skáldið vilja kveðið hafa.“
Nú lýkur hér ævi Þormóðs með þessum atburðum sem nú voru sagðir.
Átta kver.
Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellískrift.
Upphafsstafir dregnir aðeins hærri (1-2 línur).
Jaðar er litaður með rauðu bleki og gulbrúnum lit.
Sjá fyrir ofan.
„Fragment sögu Þorsteins Síðu-Hallssonar“
„… hverfingunni og voru þau drepin bæði. Þetta sumar ætlaði Þorsteinn utan …“
„… Þórdísi dóttur Síðu-Halls átti Þórður Halldórsson úr Forsárskógum“
... og lýkur svo þessi sögu er frá Þorsteini er sögð.
Eitt kver.
Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellískrift.
Upphafsstafir dregnir aðeins hærri (1-2 línur).
Ígildi bókahnúts við loka texta (bl. 64v).
Jaðar er litaður með rauðu bleki og gulbrúnum lit.
Sjá fyrir ofan.