Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 140 fol.

Sögubók ; Noregur, 1690-1697

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-18r)
Bandamanna saga
Titill í handriti

Bandamanna saga

Upphaf

Ófeigur hét maður, hann bjó í Miðfirði norður á Reykjum …

Niðurlag

… Snorri Kálfsson og þeir Miðfirðingar og lýkur hér sögunni.

2 (18v-47v)
Flóamanna saga
Titill í handriti

Hér hefur Flóamanna sögu

Upphaf

Haraldur konungur Gullskeggur réð fyrir Sogni …

Niðurlag

… föður Gissurar galla, föður Hákonar, föður Jóns.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 47 + i blöð (316 mm x 200 mm).
Tölusetning blaða

  • Hvor saga um sig er blaðsíðumerkt, 1-35 og 1-59.
  • Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-58.

Kveraskipan

Sjö kver.

  • Kver I: bl. 1, stakt blað.
  • Kver II: bl. 2-7, 3 tvinn.
  • Kver III: bl. 8-15, 2 stök blöð og 3 tvinn.
  • Kver IV: bl. 16-24, stakt blað og 4 tvinn.
  • Kver V: bl. 25-32, 4 tvinn.
  • Kver VI: bl. 33-40, 4 tvinn.
  • Kver VII: bl. 41-47, stakt blað og3 tvinn.

Umbrot

Eindálka.

Leturflötur er ca 225 mm x 145 mm.

Línufjöldi er ca 30.

Griporð á bl. 16v, 23v, 24v, 32v, 40v.
Ástand

  • Blek hefur smitast sums staðar, einkum á bl. 1.
  • Á stöku stað hefur verið strikað undir orð og setningar með rauðu bleki.

Skrifarar og skrift

Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellískrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Leiðrétting á spássíu bl. 31r með hendi skrifara.

Band

Band frá 1910-1920 (324 mm x 207 mm x 17 mm). Pappaspjöld klædd brúnum marmarapappír, bókfell á kili. Blár safnmarksmiði á kili.

Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti (tvídálka).

Fylgigögn

Fastur seðill á saurblaði 2r (112 mm x 11 mm) með hendi Árna Magnússonar: Frá sál. assessor Thormod Torvesens enke 1720.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 100, en virkt skriftartímabil Ásgeirs Jónssonar var ca 1686-1707.

Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 g fol., AM 157 a fol., AM 154 fol., AM 157 c fol., AM 157 e fol., AM 164 k fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, bl. 6v-7r).

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. seðil og AM 435 b 4to, bl. 6v-7r).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH lagfærði í nóvember 2010. ÞS skráði 12. september - 24. nóvember 2008. DKÞ færði inn grunnupplýsingar 17. september 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 25. nóvember 1885 (sjá Katalog I 1889:100 (nr. 169) .

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Heimtur: Ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, Skrifarinn Ásgeir Jónsson frá Gullberaströnd í Lundarreykjadal
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson, Vésteinn Ólason
Umfang: s. 282-297
Titill: STUAGNL, Flóamanna saga
Ritstjóri / Útgefandi: Finnur Jónsson
Umfang: LVI
Titill: STUAGNL, Bandamanna saga med Oddsþáttr, Ǫlkofra þáttr
Ritstjóri / Útgefandi: Finnur Jónsson
Umfang: LVII
Lýsigögn
×

Lýsigögn