Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 129 fol.

Eyrbyggja saga ; Ísland, 1650-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-26v)
Eyrbyggja saga
Titill í handriti

Hér hefur Eyrbyggju

Upphaf

Ketill flatnefur hét hersir ættgöfugur …

Niðurlag

… fýstust ég þess sagði Þorsteinn og skildu við svo búið.

Skrifaraklausa

Hér endar þessi saga, sælir alla daga.

Athugasemd

Ofangreind skrifaraklausa er á blaði 26v.

Á stöku stað gerir skrifari eyður í uppskrift sína (hugsanlega vegna ólæsilegra orða í frumriti).

2 (26v)
Tvær vísur
2.1 (26v)
Vísa um Björn Ásbrandsson
Titill í handriti

Vísa um Björn Ásbrandsson

Upphaf

Leið fór Björn svo bráða Breiðvíkingur …

Niðurlag

… dauðann veitti kauðum.

Efnisorð
2.2 (26v)
Vísa um Steinþór Þorláksson
Titill í handriti

Vísa um Steinþór Þorláksson

Upphaf

Steinþór á Eyri stundum standa …

Niðurlag

… henti spjót og sendi.

Skrifaraklausa

H:M:S:M:E:H:

Athugasemd

Ofangreind skrifaraklausa er á blaði 26v.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Fangamark CHVORK, fyrir ofan er Hermans orf flagg og ártal 1670 fyrir neðan // Ekkert mótmerki ( 1-3, 5, 8, 10-11, 13 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Dárahöfuð, 4 stórar bjöllur á kraga, stór Hermes kross og 3 stórir hringir á staf ( 18-20, 24 ) // Mótmerki: Fangamark RONDEL ( 17, 21-23, 25-26 ).

Blaðfjöldi
i + 26 + i blað (304 mm x 194 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerkt með bleki 1, 5, 10… 20, 25 og 26. Blöðin á milli, þ.e. 2, 3, 4,… 6, 7, 8, 9… 11, 12, o.s.frv. eru merkt með blýanti.

Kveraskipan

5 kver:

  • Kver I: spjaldblað - fylgigögn 1 (eitt tvinn + eitt blað)
  • Kver II: bl. 1-16 (8 tvinn: 1+16, 2+15, 3+14, 4+13, 5+12, 6+11, 7+10, 8+9)
  • Kver III: bl. 17-24 (4 tvinn: 17+24, 18+23, 19+22, 20+21)
  • Kver IV: bl. 25-26 (1 tvinn: 25+26)
  • Kver V: aftara saurblað 1 - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 250-255 mm x 150-160 mm.
  • Línufjöldi er ca 34-36.
  • Kaflaskipting, 39 kaflar.

Ástand

  • Blettir eru víða á blöðum; texti þó yfirleitt læsilegur (sbr. t.d. 10v-12r).
  • Texti á spássíum hefur sumstaðar skerts vegna afskurðar blaða, sjá t.d. blað 1v.

Skrifarar og skrift

Skreytingar

Fyrsti höfuðstafur er ca 3 línur og fínlega skreyttur (bl. 1r). Aðrir höfuðstafir eru um 1-2 línur og eru minna skreyttir.

Fyrsta lína kafla er skrifuð með aðeins hærri og skreyttum stöfum.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Aftast leysir Árni Magnússon úr upphafsstöfum skrifarans, með hendi um 1720: Hinrik Magnússon er bjó í Saurbæ (26v).
  • Spássíugreinar, sbr. t.d. á blöðum 1v-2r.

Band

Band (310 mm x 220 mm x 20 mm) frá 1973.

Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum, saumað á móttök. Ný saurblöð.

Eldra pappaband (305 mm x 198 mm x 8 mm) frá ca 1730-1780.

Eldri saurblöð fylgja eldra bandi.

Safnmark og titill er ritað framan á kápuspjald. Blár safnmarksmiði er á kili.

Fylgigögn

  • Fastur seðill (45 mm x 149 mm) á blaði 1r með hendi Árna Magnússonar: Eyrbyggja saga. Úr bók er ég fékk af monsieur Jónasi Daðasyni.
  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í  Katalog I, bls. 92, en virkt skriftartímabil skrifara var á s.hl. 17. aldar. Rannsóknir á vatnsmerkjum benda til þess að handritið hafi verið ritað eftir 1670.

Handritið tilheyrði áður sama handriti og AM 5 fol., AM 108 fol., AM 113 d fol., AM 163 k fol. og AM 164 c fol.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið úr bók frá Jónasi Daðasyni (sjá seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 4. mars 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 17. nóvember 1885 í Katalog I, bls. 92-93 (nr. 158), ÓB tölvuskráði 31. ágúst 2001, VH skráði handritið skv. TEIP5 reglum 3. mars 2009; lagfærði í nóvember 2010 ÞÓS skráði 16. júní 2020. EM lagfærði kveraskipan 12. júní 2023. MJG uppfærði skráningu með gögnum frá BS, 12. febrúar 2024.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall 1973. Eldra band fylgir og saurblöð.

Matthias Larsen Bloch batt ca 1730-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn. 

Notaskrá

Höfundur: Scott, Forrest S.
Titill: Eyrbyggja saga. The vellum tradition,
Umfang: 18
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn