Skráningarfærsla handrits

AM 120 fol.

Sturlunga saga

Athugasemd
Líklega af sama stofni og AM 114 fol. og AM 115 fol. Þórður Þórðarson hefur borið handritið saman við annað pappírshandrit. Árna sögu hefur hann ekki borið saman við það handrit þar sem það hefur einungis innihaldið útdrátt sögunnar. Á seðli eru tilmæli Árna Magnússonar til Þórðar um að bera handritið saman við bók Vigfúsar Jónssonar á Leirá, til hans komna frá Látrum en ættaða frá Magnúsi Jónssyni í Vigur.

Innihald

1 (1r-282v)
Sturlunga saga
2 (283r-305v)
Árna saga biskups
Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð 1, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 stórir hringir ( 1 , 5-7 , 9 , 11 , 13 , 15 , 19 , 21 , 23-24 , 26 , 28 , 30 , 32 , 34 , 37-38 , 40 , 42 , 44 , 50 , 72-76 , 85 , 87 , 90 , 93 , 96 , 101-105 , 107 , 117 , 120-121 , 123 , 125 , 129 , 131-132 , 139 , 144 , 146 , 148 , 150 , 154 , 157-159 , 164 , 166-170 , 172 , 174 , 178 , 180 , 182 , 184 , 186 , 188 , 190 , 192 , 197-198 , 200 , 203 , 206-207 , 208 , 209-211 , 213-214 , 217 , 222 , 224-227 , 231-233 , 235-238 , 243 , 245 , 247 , 249 , 255-261 , 263 , 269-270 , 273-274 , 278 , 280-286 , 291-294 , 303-305 , blað 208 er 208bis ) // Mótmerki: Fangamark MB ( 2-4 , 8 , 10 , 12 , 14 , 16-18 , 20 , 22 , 27 , 29 , 31 , 33 , 35-36 , 39 , 137 , 142 , 155-156 , 162-163 , 171 , 173 , 176-177 , 179 , 181 , 183 , 185 , 187 , 189 , 191 , 201 , 204-205 , 212 , 216 , 218 , 221 , 223 , ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Dárahöfuð 2, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 stórir hringir og sveigður stafur // Ekkert mótmerki ( 46 , 48 , 53-54 , 56-59 , 61 , 66-68 , 81 , 83 , 94 , 109 , 111 , 115 , 127 , 135 , 140 , 143 , 152 , 194 ).

Blaðfjöldi
i + 305 + i blöð (321 mm x 212 mm), auk innskotsbl. 203bis og 208bis.
Kveraskipan

40 kver:

  • I: spjaldblað - viðbót 2 (eitt tvinn + tvö blöð)
  • II: bl. 1-8 (4 tvinn: 1+8, 2+7, 3+6, 4+5)
  • III: bl. 9-16 (4 tvinn: 9+16, 10+15, 11+14, 12+13)
  • IV: bl. 17-24 (4 tvinn: 17+24, 18+23, 19+22, 20+21)
  • V: bl. 25-32 (4 tvinn: 25+32, 26+31, 27+30, 28+29)
  • VI: bl. 33-40 (4 tvinn: 33+40, 34+39, 35+38, 36+37)
  • VII: bl. 41-48 (4 tvinn: 41+48, 42+47, 43+46, 44+45)
  • VIII: bl. 49-56 (4 tvinn: 49+56, 50+55, 51+54, 52+53)
  • IX: bl. 57-64 (4 tvinn: 57+64, 58+63, 59+62, 60+61)
  • X: bl. 65-72 (4 tvinn: 65+72, 66+71, 67+70, 68+69)
  • XI: bl. 73-80 (4 tvinn: 73+80, 74+79, 75+78, 76+77)
  • XII: bl. 81-88 (4 tvinn: 81+88, 82+87, 83+86, 84+85)
  • XIII: bl. 89-96 (4 tvinn: 89+96, 90+95, 91+94, 92+93)
  • XIV: bl. 97-104 (4 tvinn: 97+104, 98+103, 99+102, 100+101)
  • XV: bl. 105-112 (4 tvinn: 105+112, 106+111, 107+110, 108+109)
  • XVI: bl. 113-120 (4 tvinn: 113+120, 114+119, 115+118, 116+117)
  • XVII: bl. 121-128 (4 tvinn: 121+128, 122+127, 123+126, 124+125)
  • XVIII: bl. 129-136 (4 tvinn: 129+136, 130+135, 131+134, 132+133)
  • XIX: bl. 137-144 (4 tvinn: 137+144, 138+143, 139+142, 140+141)
  • XX: bl. 145-152 (4 tvinn: 145+152, 146+151, 147+150, 148+149)
  • XXI: bl. 153-160 (4 tvinn: 153+160, 154+159, 155+158, 156+157)
  • XXII: bl. 161-168 (4 tvinn: 161+168, 162+167, 163+166, 164+165)
  • XXIII: bl. 169-176 (4 tvinn: 169+176, 170+175, 171+174, 172+173)
  • XXIV: bl. 177-184 (4 tvinn: 177+184, 178+183, 179+182, 180+181)
  • XXV: bl. 185-192 (4 tvinn: 185+192, 186+191, 187+190, 188+189)
  • XXVI: bl. 193-200 (4 tvinn: 193+200, 194+199, 195+198, 196+197)
  • XXVII: bl. 201-210 (5 tvinn + tvö blöð: 201+210, 202+209, 203bis, 203+208, 204+207, 205+206, 208bis)
  • XXVIII: bl. 211-218 (4 tvinn: 211+218, 212+217, 213+216, 214+215)
  • XXIX: bl. 219-226 (4 tvinn: 219+226, 220+225, 221+224, 222+223)
  • XXX: bl. 227-234 (4 tvinn: 227+234, 228+233, 229+232, 230+231)
  • XXXI: bl. 235-242 (4 tvinn: 235+242, 236+241, 237+240, 238+239)
  • XXXII: bl. 243-250 (4 tvinn: 243+250, 244+249, 245+248, 246+247)
  • XXXIII: bl. 251-258 (4 tvinn: 251+258, 252+257, 253+256, 254+255)
  • XXXIV: bl. 259-266 (4 tvinn: 259+266, 260+265, 261+264, 262+263)
  • XXXV: bl. 267-274 (4 tvinn: 267+274, 268+273, 269+272, 270+271)
  • XXXVI: bl. 275-282 (4 tvinn: 275+282, 276+281, 277+280, 278+279)
  • XXXVII: bl. 283-290 (4 tvinn: 283+290, 284+289, 285+288, 286+287)
  • XXXVIII: bl. 291-298 (4 tvinn: 291+298, 292+297, 293+296, 294+295)
  • XXXIX: bl. 299-305 (eitt blað + 3 tvinn: 299, 300+305, 301+304, 302+303)
  • XL: aftara saurblað - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot

  • Síðutitlar.
  • Griporð.

Skreytingar

Upphafsstafir og titlar mikið skreyttir með pennaflúri, einkum á bl. 1 og 283.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Innskotsblöð við bl. 203 og 208 (bl. 203bis og 208bis) með tilsvarandi texta úr öðru handriti, e.t.v. því sama og Þórður notaði við samanburð.
  • Handritið er merkt C á spássíu bl. 1r með hendi frá 18. öld.
  • Lesbrigði á spássíum og milli lína að bl. 285r, með hendi Þórðar Þórðarsonar.
  • Ártöl og tilvísanir hér og þar á spássíum.
  • Nokkrar vísur á spássíum um persónur sögunnar eftir sr. Jón Arason í Vatnsfirði.
  • Á spássíu við síðasta kafla Árna sögu hefur Árni Magnússon skrifað upp athugagrein Brynjólfs Sveinssonar biskups úr AM 115 fol. um uppruna þessa viðbótarkafla.

Band

Band frá 1880-1920. Strigi á kili og hornum, pappírsklæðning.

Fylgigögn

Tveir seðlar fremst:

  • Með hendi skrifara (ef til vill Þórðar Þórðarsonar): (163 mm x 101 mm): Þessa mína Sturlungasögu bið ég ráðsmanninn Þórð Þórðarson að conferera orðrétt við meðfylgjandi bók monsieur Vigfúss Jónssonar á Leirá sem síðan á að leverast biskupinum en mín bók leverest svo síðan Páli Hákonarsyni til að pakka saman við mitt tau. Vildi ég gjarnan þetta gæti skeð í vetur, helst um skammdegið meðan ekki verður annað gjört. Eins gildir hvernig mín bók rásurast.
  • Með hendi Árna Magnússonar og sama skrifara og á fyrri seðlinum (ef til vill Þórðar Þórðarsonar): (165 mm x 105 mm): Sturlungasögu folio fékk Vigfús Jónsson á Leirá í Látrum, vidit séra Hjalti, segir hún hafi ei verið með hendi séra Vigfúss Guðbrandssonar en man ei með hvers hendi verið hafi. [Með annarri hendi] Bókina á nú Vigfús Jónsson á Leirá, er hún framan af fram í 9da þáttinn nærri miðjan skrifuð með hendi skrifara α Magnúsar í Vigur. Hálfur níundi þátturinn, 10di og Árna biskups saga er skrifað með hendi séra Vigfúss Guðbrandssonar, vidi. Við þessa Vigfúss Jónssonar bók mun ég biðja Þórð Þórðarson conferera mína í folio er ég fékk af séra Vigfúsi. α). Ég trúi það sé hönd Þórðar á Strandseljum. [Á baksíðu þessa seðils, fyrri helmingi, er með Íslandshendi Árna gerður kross þvert yfir eftirfarandi texta: „Compendium Sturlungasögu með hendi séra Halldórs 4to þverhandarþykk. Hafði séra Jón í Hítardal í Skálholti og las séra Hjalti þar; Sturlungasaga folio hjá Vigfúsi Jónssyni, með hendi …“]

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 82.

Ferill

Árni Magnússon virðist hafa fengið handritið frá sr. Vigfúsi Guðbrandssyni á Helgafelli á árunum 1704-1707.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 4. mars 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 82-83 (nr. 147). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885. DKÞ skráði 30. nóvember 2001. ÞÓS skráði vatnsmerki 12. júní 2020. EM skráði kveraskipan 8. júní 2023.

Viðgerðarsaga

Bundið af Otto Ehlert á árunum 1880-1920.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir (bl. 283r-305v) á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.
  • Filma (bl. 283r-305v) á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi (askja 14).

Notaskrá

Höfundur: Loth, Agnete
Titill: , Om håndskrifter fra Vigur i Magnús Jónssons tid. Tre bidrag
Umfang: s. 92-100
Titill: , Íslenzk Fornkvæði: Islandske Folkeviser Bd I-VIII
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: X-XVII
Höfundur: Jóhann Gunnar Ólafsson
Titill: Magnús Jónsson í Vigur, Skírnir
Umfang: 130
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Biskupa sögur
Umfang: I-II
Lýsigögn
×

Lýsigögn