Prentað í Diplomatarium Islandicum V s. 481-482 eftir tveimur öðrum uppskriftum frá 18. öld; orðamunur nokkur.
Uppskrift á pappír frá 18. öld. Byggingarbréf Odds Ásmundssonar lögmanns fyrir hálfri Mælifellsá í Skagafirði, 2. maí 1467 (uppskriftin hefur 1440).
Pappír.
Er komið úr dánarbúi Jóns Péturssonar háyfirdómara. 19. nóvember 1898.
Athugað fyrir myndatöku október 2014.
Myndað í nóvember 2014.
Myndað fyrir handritavef í nóvember 2014.