„Vísa dróttkveðin“
„Greiði þér gæfu leiðir …“
1 erindi.
„Guð alvaldur geymi þig frá pínu …“
„Gilsfjörður“
„Heimsunaðs-dýrðar sjón hlær móti augum …“
6 erindi.
„Dalvísur“
„Bröttum hlíðum búinn dalur …“
8 erindi.
„Tárið“
„Þú sæla heimsins svalalind …“
3 erindi.
„Hin saklausa gleði …“
„Hve indæl, fögur og ástarblíð …“
5 erindi. Erindin eru númeruð og á eftir kvæðinu stendur talan 6 án þess að nokkurt erindi fari á eftir henni.
„Minni Íslands“
„Feðra vorra fósturláð …“
4 erindi.
„Vetrardagurinn fyrsti 1867“
„Nú blæs of hauður bitrum norðan gjósti …“
3 erindi.
„Heimkoma“
„Stígur myrkur á grund, hnígur miðsvetrar-sól …“
10 erindi.
„Til næturinnar“
„Þú vetrarnótt með volegt storma brak …“
2 erindi. Undir kvæðinu stendur „P.“
„ … í lausnarans himin …“
„ … breiddi þín broshýra gleði …“
Brot. Vantar framan af. Vantar aftan af.
„Guðnýjar sálmur“
„Endurminningin er svo glögg …“
8 erindi af 11.
„Móðurkveðja“
„Eg vef þig nú með veikri hönd …“
10 erindi af 11.
„Halldóra Þorsteinsdóttir“
„Hve oft af himni helga morgunsól …“
7 erindi. Undir kvæðinu stendur „B Gröndal“
„Erfiljóð eftir Hillibrand á Skagaströnd“
„Maður einn forkunnarfagur í friði …“
15 erindi. Hans Natansson sagður höfundur en undir kvæðinu stendur „H. Natansson“.
„Þig mín augu aftur sjá …“
„Stafrófsvísur“
„Allra best er unan sú …“
26 erindi.
„Und Jesú opin, í nótt mín skjaldborg sé …“
„Hallgrímur Pétursson (á 200. andláts afmæli hans 27. okt. 1874)“
„Atburð sé ég anda mínum nær …“
Ekki hefur verið lokið við að skrifa upp kvæðið, af 18 erindum þess vantar 2 síðustu erindin og hluta af þriðja síðasta erindinu.
„Ortar af Eyjólfi Péturssyni“
„Eftirlætis ununin …“
16 erindi. Nafn höfundar er fólgið í fyrsta staf hvers erindis.
Pappír.
Einn dálkur.
Leturflötur er 140-160 mm x 90-100 mm.
Línufjöldi 16-23.
Óþekktur skrifari.
Tvö óinnbundin hefti.
Á blaði 21v eru rituð með annarri hendi og öðru bleki (bláu) nöfnin „Gunnar Ingvarsson Ásgeirsá í Víðidal“ og „Sigþrúður Guðmundsdóttir frá Hól við Reykjavík“.
Oddný Ingvarsdóttir fékk handritið frá föðurbróður sínum, Gunnari Ingvarssyni í Laugardalshólum í Laugardal (d. 1934), en kona hans var Steinvör Eggertsdóttir frá Stóru-Ásgeirsá í Víðidal, dóttir Eggerts Jónssonar á Kleifum, og frá henni er handritið komið.