Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 3586 8vo

Rímnabók ; Ísland, 1885

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-163r)
Rímur af Artimundi Úlfarssyni
Titill í handriti

Hér skrifast rímur af Artimund (hinum sterka) Úlfarssyni og köppum hans ortar af Þorvaldi Þorleifssyni á >Horni í Hornafirði árið 1848

Skrifaraklausa

Endað að skrifa 18. maí 1885 af Gunnari Jónssyni frá Langholti og Páli Guðmundssyni frá Strönd í Meðallandi Vestur-Skaftafellssýslu og er skrifað eftir handriti af Norðurlandi. Herra Jón Jónsson Simbakoti hefur látið skrifa og er réttur eigandi þessarar bókar (163r)

Athugasemd

Titill tekinn af fremra saurblað 2v

17 rímur

Efnisorð
2 (163v-169r)
Hallgerðarhrós
Titill í handriti

Hallgerðarhrós

Upphaf

Margur fær af litlu lof …

Skrifaraklausa

Skrifað eftir handriti (1885) Guðmundar Guðmundssonar á Svartanúpi í Skaftártungu (169r)

Athugasemd

Kvæði

3 (169r-172r)
Ævisaga Sturlu Þórðarsonar
Titill í handriti

Þáttur Sturla Þórðarsonar

Skrifaraklausa

Skrifað eftir handriti Guðmundar Guðmundssonar á Svartanúpi 1885 af Gunnari Jónssyni frá Langholti í Meðallandi(172r)

Athugasemd

Stutt ævisaga Sturlu

Efnisorð
4 (172r-175v)
Belgsbragur
Titill í handriti

Belgsbragur ortur af Magnúsi á Úlfsstöðum

Upphaf

Það er upphaf þessa máls …

Skrifaraklausa

Aftan við (175v-176r): Skrifað eftir handriti herra Guðmundar Guðmundssonará Svartanúpi í Skaftártungu 30. maí 1885 […](175v)

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Blaðfjöldi
ii + 176 + i blað (160 mm x 98 mm) Auð blöð: 34r og 176v
Skrifarar og skrift
Tvær hendur ; Skrifarar:

I. Gunnar Jónsson frá Langholti, Meðallandi

II. Páll Guðmundsson frá Strönd Meðallandi,

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1885
Ferill

Jón Jónsson í Simbakoti hefur átt handritið og látið skrifa það (163r)

Aðföng

Handritið er gjöf til Þjóðminjasafnsins úr dánarbúi Þorleifs J. Jóhannessonar

Þjóðminjasafn Íslands

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Blöð handrits voru ekki lesin saman

Sigrún Guðjónsdóttir lagaði skráningu, 1. febrúar 2010 ; Handritaskrá, 3. aukab. ; Sagnanet 16. mars 2001

Viðgerðarsaga

Athugað 2001

Lýsigögn
×

Lýsigögn