Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 3936 4to

Sögu- og rímnabók ; Ísland, 1880-1883

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-6r)
Ambrósíus saga og Rósamundu
Titill í handriti

Sagan af Ambrosius og Rósamundu

2 (6r-27r)
Helenu saga
Titill í handriti

Sagan af Helenu vænu og sonum hennar

Skrifaraklausa

Enduð sagan um kvöldið kl. hálf 9, 6. marts 1880, af Jóni Björnssyni á 62. ári þá á Randver[s]stöðum (27r)

Efnisorð
3 (27v-36r)
Ásmundar saga Sebbafóstra
Titill í handriti

Sagan af Ásmundi Sebbafóstra

Skrifaraklausa

Enduð sagan um kvöldið klukkan hálf 10, 15. marts 1880, af Jóni Björnssyni á Randversstöðum, á 62ru aldurs ári. Þá var besta hláka og sumar autt (36r)

4 (36r-44v)
Griseldis saga
Titill í handriti

Sagan af Gríshildi þolinmóðu

Skrifaraklausa

Enduð á föstudaginn langa 1880 af Jóni Björnssyni á 62. ári, Randversstöðum (44v)

5 (44v-54v)
Bærings saga
Titill í handriti

Sagan af Bæring fagra riddar Valtarasyni

Skrifaraklausa

Enduð sagan á sumardaginn fyrsta 1880 af Jóni Björnssyni á 62ru ári á Randversstöðum (54v)

Efnisorð
6 (55r-70r)
Flóamanna saga
Titill í handriti

Sagan af Þorgils orrabeins-fóstra að öðru nafni Flóamanna saga

Skrifaraklausa

Enduð sagan 9. júlí 1880 af Jóni Björnssyni á 62ru ári á Randversstöðum (70r)

7 (70r-75r)
Sagan af heimska Hans
Titill í handriti

Sagan af heimska Hans

Skrifaraklausa

Enduð sagan 27. júlí 1880 í smalakofanum á Böðvarshjallanum, J.Bs. 62. árinu (75r)

Efnisorð
8 (75r-86r)
Hálfdanar saga Brönufóstra
Titill í handriti

Sagan af Hálfdáni Brönufóstra

Skrifaraklausa

Enduð 28. október 1880 af Jóni Björnssyni á Randversstöðum og vantaði þá 13 daga í 62 ár (86r)

9 (86v-134r)
Rímur af Droplaugarsonum
Titill í handriti

Rímur af Droplaugarsonum kveðnar af Árna Böðvarssyni

Skrifaraklausa

Endaðar rímurnar 12. janúarii 1881 af Jóni Björnssyni á Randversstöðum á 63. ári (134r)

Athugasemd

22 rímur

Efnisorð
10 (134v-162v)
Bjarnar saga Hítdælakappa
Titill í handriti

Sagan af Birni Hítdælakappa

Skrifaraklausa

Enduð sagan 26. október 1881 af Jóni Björnssyni á Randversstöðum í Breiðdal, þá nærri því 60 og 3 ára (162v)

11 (162v-180v)
Hallfreðar saga vandræðaskálds
Titill í handriti

Sagan af Hallfreði vandræðaskáldi

Skrifaraklausa

Enduð sagan 14. janúarii 1882 af Jóni Björnssyni á segstugasta og fjórða ári, þá á Randversstöðum í Breiðdal. Þá var klukkan 5 og 40 m. gengin til 6 um morguninn (180v)

12 (181r-199r)
Ectors saga
Titill í handriti

Sagan af Hektori og köppum hans

Skrifaraklausa

Enduð sagan 15. apríl 1882 af Jóni Björnssyni á 64. ári á Randversstöðum (199r)

Efnisorð
13 (199r-248v)
Fljótsdæla saga
Titill í handriti

Fljótsdæla eður sagan af Droplaugarsonum

Athugasemd

Síðari hluta Droplaugarsona sögu er hér aukið við Fljótsdælu

13.1 (237r-248v)
Droplaugarsona saga
Skrifaraklausa

Enduð sagan þann 15. apríl 1883 af Jóni Björnssyni á 65. ári þá verandi á Skjögrastöðum (248v)

14 (248v-250v)
Sagan af Ásgeiri og Ásu
Titill í handriti

Sagan af Ásgeiri og Ásu

Skrifaraklausa

Enduð bókin á sumardaginn fyrsta 1883 af J.Bs. á 65. ári (250v)

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Tvennskonar vélunninn pappír, án vatnsmerkja.

Blaðfjöldi
i + 250 + i blöð (207 mm x 166 mm).
Tölusetning blaða

Gömul blaðsíðumerking 1-496 (1r-250v), blaðsíður 251-254 tvítaldar (128r-129v).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er um 175-180 mm x 145-153 mm.
  • Leturflötur er víðast afmarkaður með strikum.
  • Línufjöldi er 29-30.

Ástand

Ástand handrits við komu: Sæmilegt.

Blek mjög laust og útkámað.

Skrifarar og skrift
Ein hönd (blað (232v) að mestu með annarri hendi) ; Skrifari:

Jón Björnsson á Randversstöðum í Breiðdal

Skreytingar

Mannamynd: 112r, tæplega heilsíðumynd, litur fjólublár, á miðri mynd er skrifað: Á jólanóttina árið 1880.

Manna- og skipamynd: 142v, hálfsíðumynd, litur fjólublár.

Víða andlitsmyndir í tengslum við griporð, einkum aftan til.

Víða andlitsmyndir af sögupersónum neðst á síðum, einkum aftan til.

Víða eru fugla-, dýra-, skipa- og blómamyndir neðst á síðum.

Skrautstafir og litaðir upphafsstafir á stöku stað.

Upphafsstafir stórir og ögn skreyttir.

Á stöku stað er texti skrifaður með fjólubláum lit.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Fremra saurblað r-hlið: Sögur og rímur [með annarri hendi].

Band

Band frá því um 1880-1883 (215 mm x 166 mm x 41 mm).

Ólitað skinnband með tréspjöldum, kjölur skrautþrykktur. Skinn afar skítugt.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1880-1883.
Aðföng

Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri og bókaútgefandi á Akureyri, gaf, 3. október 1958.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður H. Jörundsdóttir bætti við skráningu, 15. nóvember 2012 ; Sigrún Guðjónsdóttir aðlagaði skráningu, 15. júní 2009 ; Handritaskrá, 3. aukab. ; Sagnanet 15. september 1998.
Viðgerðarsaga

Athugað 1998.

Myndað í desember 2012.

Myndir af handritinu
127 spóla negativ 35 mm ; án spólu

Myndað fyrir handritavef í desember 2012 .

Lýsigögn