Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 1529 4to

Samtíningur ; Ísland, 1600-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-7v (1-14))
Ó þú fallvalta veraldarvist
Höfundur

Hallur Guðmundsson

Titill í handriti

Hérvistar- og andlátsminning míns heiðurlega og hjartans elskuverða, sæla og sáluga föðurs, séra Guðmundar Erlendssonar, hvör eð eftir sína sjötíu og fimm ærða ævi var náðarsamlega af almáttugum Guði í samfélag himneskrar kristni og sigursafnaðar hafinn og heimkallaður þann 21. mars 1670 í ljóðum samsett. Tóninn sem við Magdiborgarvísur.

Upphaf

Ó þú fallvalta veraldar vist / von er að þeir sem Jesúm Krist ...

Lagboði

Magdiborgarvísur

Skrifaraklausa

Hans eftirþreyjandi sonur Hallur Guðmundsson hefur þetta sorgandi sungið (bl. 7v).

Athugasemd

187 erindi. Fyrir neðan sálminn hefur upphaflega verið skilið eftir autt pláss, um hálf síða. Þar er ýmislegt krot.

2 (8r-8v (15-16))
Morgun og kvöldsálmar
Titill í handriti

Morgun og kvöldsálmar séra Jóns Magnússonar. Lag: Heiðrum vé[r] Gu[0]

Athugasemd

1 morgunsálmur og 1 kvöldsálmur

Efnisorð
2.1 (8r (15))
Heiður sé Guði á himni og jörð
Upphaf

Heiður sé Guði á himni og jörð / hans nafni sæta þakkargjörð ...

Lagboði

Heiðrum vér Guð af hug og sál

Athugasemd

7 erindi

Efnisorð
2.2 (8r-8v (15-16))
Heiður sé Guði á himni og jörð
Titill í handriti

Kvöldsálmurinn með sama lag.

Upphaf

Heiður sé Guði á himni og jörð / hans nafni sæta þakkargjörð ...

Lagboði

Heiðrum vér Guð af hug og sál

Athugasemd

8 erindi

Efnisorð
3 (8v (16))
Vökumanns varfær lund
Titill í handriti

Morgunþanki vakandi manns. Tón: Ó Jesú elsku hreinn

Upphaf

Vökumanns varfær lund / vonar á morgunstund ...

Lagboði

Ó Jesú elsku hreinn

Athugasemd

6 erindi. Við niðurlag sálmsins kemur fram nafn höfundarins.

Efnisorð
4 (9r-10v (17-20))
Guðhræddrar kvinnu Guðrúnar
Höfundur

sr. Sveinn Jónsson

Titill í handriti

Blessuð minning. Minnar elskulegu (og í drottni sætt sofnuðu) hjartans móður, Guðrúnar Gunnarsdóttur, hvör fyrir svefnhægt andlát af drottni burt var kölluð til eilífrar dýrðar 8. febrúar 1668Felli í Sléttahlíð, á sjötugasta og áttunda ári síns aldurs. Í söngvísu samsett hin fyrsta af síra Sveini JónssyniBarði. Við tón sem Einn tíma var sá auð[0]. Sálm. 112 Þeim réttláta skal aldrei gleymt verða.

Upphaf

Guðhræddrar kvinnu Guðrúnar / Gunnars hvör kærust dóttir var ...

Lagboði

Einn tíma var sá auð[ugur mann]

Athugasemd

20 erindi. Við niðurlag sálmsins stendur: Síra Sveinn Jónsson 28. apríl 1668.

5 (10v-12v (20-24))
Vil ég í Guði glaður
Titill í handriti

Samtal (í eintali) eftirþreyjandi sálar við sitt minnisstæða (og í drottni sofnaða) ektahjarta. Tón: Guði lof sk[al]t [0]

Upphaf

Vil ég í Guði glaður / gjöra samtal við hjartað mitt ...

Lagboði

Guð lof skalt önd mín inna [?]?

Athugasemd

24 erindi. Við niðurlag sálmsins kemur nafn höfundarins fram.

6 (12v-15v (24-30))
Jesú sjálfur og Jóhannes líka
Titill í handriti

Þriðja söngvísa sama efnis. Við lag: Sæll og heppinn sá má heita

Upphaf

Jesús sjálfur og Jóhannes líka / játning fyrir oss leggja slíka ...

Lagboði

Sæll og heppinn sá má heita

Athugasemd

50 erindi. Við niðurlag sálmsins kemur nafn höfundarins fram.

7 (16r (31))
Sönn dýrð föðurnum sungin sé
Titill í handriti

Vessakorn við tón: Vor herra Jesús vissi þ

Upphaf

Sönn dýrð föðurnum sungin sé / sem oss í Kristó skapaði ...

Lagboði

Vor herra Jesús víssi það

Athugasemd

2 erindi. Við niðurlag sálmsins stendur: G. E. S.

Efnisorð
8 (16r-17r (31-33))
Burt héðan heims frá stríðu
Titill í handriti

Umþenking eilífrar sælu. Tón: Krists er koma fyrir höndum. Ort af séra Hallg(rími) Pét(urs)s(yni).

Upphaf

Burt héðan heims frá stríðu / hjartað mjög langar mitt ...

Lagboði

Krists er koma fyrir höndum

Athugasemd

15 erindi.

Efnisorð
9 (17r-17v (33-34))
Hvað hjartans kæran hafði mig
Titill í handriti

Bænarsálmur. Séra H. P. S. Með tón: Óvinnanleg borg er vor guð

Upphaf

Hvað hjartans kæran hafði mig / herrann minn Jesús góði ...

Lagboði

Óvinnanleg borg er vor Guð

Athugasemd

10 erindi. Við fyrirsögnina hefur verið bætt við með blýanti: II: 274.

Efnisorð
10 (17v-18r (34-35))
Herra Jesú mín hjálp ertú
Titill í handriti

2. Bænarsálmur. Með tón: Eins og sitt barn Séra H. P. S.

Upphaf

Herra Jesú mín hjálp ertú / þó heimurinn vilji ei láta ...

Lagboði

Eins og sitt barn

Athugasemd

10 erindi. Úr upphafsstöfum erindanna má lesa nafnið Hallgrímur. Við fyrirsögnina stendur með blýanti: II. 263.

Efnisorð
11 (18r-19r (35-37))
Ég gef mig allan Guðs míns náð
Titill í handriti

Dagleg umþenking mannsins fallvaltrar ævi, skjótrar burtfarar og efalausrar upprisu. Við tón: Nær því og Eins og sitt barn, faðir et. Séra H. P. S.

Upphaf

Ég gef mig allan Guðs míns náð / geymi hann vel mitt efni og ráð ...

Lagboði

Eins og sitt barn

Athugasemd

37 erindi. Við fyrirsögnina stendur með blýanti: II. 242.

Efnisorð
12 (19r-19v (37-38))
Ég vænti drottinn eftir þér
Titill í handriti

Fimmti sálmur séra Hallgríms Péturssonar. Með tón: Óvinnanleg borg er vor Guð

Upphaf

Ég vænti drottinn eftir þér / í minni hörmung langri ...

Lagboði

Óvinnanleg borg er vor Guð

Athugasemd

5 erindi. Við fyrirsögnina stendur með blýanti: II. 285.

Efnisorð
13 (19v-20r (38-39))
Ó Jesú elsku hreinn
Titill í handriti

Einn sálmur um ánauð þeirra heilögu hér í heimi, svo vel sem alls mannkynsins

Upphaf

Ó Jesú elsku hreinn / æðri þér finnst ei neinn ...

Athugasemd

20 erindi

Efnisorð
14 (20r (39))
Þeim nýja kóngi nýjan söng
Titill í handriti

Einn nýárssálmur með tón: Á millum bræðra elskulegra Séra H. P. S.

Upphaf

Þeim nýja kóngi nýjan söng / með nýrri raust ...

Lagboði

Á millum bræðra elskulegra

Athugasemd

9 erindi

15 (20r-20v (39-40))
Lof sé þér herra hár
Titill í handriti

Önnur nýarsvísa. Með tón: Kom andi heilagi. Séra H. P. S.

Upphaf

Lof sé þér herra hár / himneski faðir ...

Lagboði

Kom andi heilagi

Athugasemd

17 erindi

16 (20v (40))
Jesú minn trúr Jesú minn trúr
Titill í handriti

Nokkur sálmvers. Með tón: Heiminn vor Guð

Upphaf

Jesú minn trúr Jesú minn trúr / járnhlið og múr ...

Lagboði

Heiminn vor Guð

Athugasemd

5 erindi. Úr upphafsstöfum erindanna má lesa: Jesús.

Efnisorð
17 (20v (40))
Ó Jesú kær hjörtun áhrær
Titill í handriti

Tvö vers með lag: Eins og sitt barn

Upphaf

Ó Jesú kær hjörtun áhrær / með heilögum anda þínum ...

Lagboði

Eins og sitt barn

Athugasemd

2 erindi

Efnisorð
18 (21r-22r (41-43))
Nýársgáfa
Titill í handriti

Einn nýárssálmur með tón: Heiðrum vér Guð af hug og sál.

Upphaf

Himneski faðir þóknist þér / þinn heilaga anda að senda mér ...

Lagboði

Heiðrum vér Guð af hug og sál

Athugasemd

28 erindi. Nafn sálmsins, Nýársgáfa, kemur fram í þriðja síðasta erindinu.

19 (22r-22v (43-44))
Ó ver velkomið árið nýtt
Titill í handriti

Einn annar nýárssálmur, með tón: Endurlausnarinn vor Jesú Kr(ist)

Upphaf

Ó ver velkomið árið nýtt / allmarga blessan færði oss hitt ...

Lagboði

Endurlausnarinn vor Jesú Krist

Athugasemd

11 erindi

20 (22v-23v (44-46))
Mín hjartkær unnustan hvar ert þú
Titill í handriti

Þriðji nýárssálmur, með tón: Allt mitt ráð til Guðs ég s.

Upphaf

Mín hjartkær unnustan hvar ert þú / haf þig fagnandi uppi nú ...

Lagboði

Allt mitt ráð til Guðs ég set

Athugasemd

20 erindi

21 (23v-24v (46-48))
Þú kristin sála þjáð og mædd
Titill í handriti

Einn góður sálmur, með tón: Náttúran öll og eðli manns

Upphaf

Þú kristin sála þjáð og mædd / þreytt undir krossins byrði ...

Lagboði

Náttúran öll og eðli manns

Athugasemd

18 erindi. Við fyrirsögnina stendur með blýanti: H P. II 277.

Efnisorð
22 (24v-25r (48-49))
Herra minn Guð sem húm og dag
Titill í handriti

Einn kvöldsálmur, með tón: Herra Guð í himinríki

Upphaf

Herra minn Guð sem húm og dag / hefur aðskiljast látið ...

Lagboði

Herra Guð í himinríki

Athugasemd

14 erindi

Efnisorð
23 (25r-25v (49-50))
Réttlætis sanna sól
Titill í handriti

Einn morgunsálmur. Tón: Faðir á himna hæð

Upphaf

Réttlætis sanna sól / setjandi á dýrðar stól ...

Lagboði

Faðir á himna hæð

Athugasemd

27 erindi

Efnisorð
24 (25v-26r (50-51))
Heyr mig ljúfasti herra minn
Titill í handriti

Sálmkorn. Með tón: Jesús Kristur á krossi var

Upphaf

Heyr mig ljúfasti herra minn / heyrðu mig fyrir dreyrann þinn ...

Lagboði

Jesús Kristur á krossi var

Athugasemd

6 erindi

Efnisorð
25 (26r-26v (51-52))
Æski ég af innstu rótum
Titill í handriti

Enn einn góður sálmur, með tón: Konung Davíð sem ke

Upphaf

Æski ég af innstu rótum / ó Jesú komu þín ...

Lagboði

Konung Davíð sem kenndi

Athugasemd

11 erindi

Efnisorð
26 (26v-28v (52-56))
Himneski faðir heyr þú mig
Titill í handriti

Einn góður sálmur í þungum freistingum. Með tón: Einn tíma var sá auðugur mann

Upphaf

Himneski faðir heyr þú mig / hrópa ég nú í trú á þig ...

Lagboði

Einn tíma var sá auðugur mann

Athugasemd

30 erindi

Efnisorð
27 (28v (56))
Ó Jesú, Jesú, Jesús kær
Titill í handriti

Annar góður sálmur sama efnis. Tón: Faðir vor sem á himnum ert.

Upphaf

Ó Jesú, Jesú, Jesús kær / Jesús vertu mér sjálfur nær ...

Lagboði

Faðir vor sem á himnum ert

Athugasemd

9 erindi. Við fyrirsögnina hefur verið bætt við með annarri hendi: Árni Pétursson.

Efnisorð
28 (29r-34r (57-67))
Vökuvarpa
Titill í handriti

Vökuvarpa 1 stef með bragarhátt svo sem Lilja

Upphaf

Heilagur andi í heiminn sendur / að hindra og straffa villu og syndir ...

Lagboði

Svo sem Lilja

Skrifaraklausa

1664

Athugasemd

152 erindi. 10 stef alls, merkt á spássíu hvar nýtt stef hefst.

Í fyrirsögninni hefur Vökubón verið breytt í Vökuvarpa.

Við niðurlag kvæðisins stendur ártalið 1664 og að auki nokkrar línur sem virðist eiga að skjóta inn í textann hér og hvar, sumar með innsetningarmerkjum.

Efnisorð
29 (34v-35r (68-69))
Allt eins og blómstrið eina
Titill í handriti

Einn sálmur um fallvalt mannsins líf. Séra Hallg. Pét. Tón: Dagur í austri öllu

Upphaf

Allt eins og blómstrið eina / uppvex á sléttri grund ...

Lagboði

Dagur í austri öllu

Athugasemd

13 erindi

Efnisorð
30 (35v (70))
Jesús frægstur frelsari minn
Höfundur

H. G.

Titill í handriti

H. G. Sálmkorn og bón til Kristum um hægan dauða og afgang. Tón: Jesús Kristus á krossi var

Upphaf

Jesús frægstur frelsari minn / fyrir mig dauðans beiskleikinn ...

Lagboði

Jesús Kristur á krossi var

Athugasemd

9 erindi

Efnisorð
31 (36r-37bisr (71-74a))
Nýr minnis annáll einn er hér
Titill í handriti

Stutt innihald þess fáheyrða, grimma og ofurdáðuga illræðis og umsáturs sem sú Fairfaxiska stríðsmakt í Englandi gjörði á móti einum kóngi, Caroli Stuart. Tón: Eins og sitt barn faðir ástargjarn, etc. etc.

Upphaf

Nýr minnis annáll einn er hér / inn í landið fenginn ...

Lagboði

Eins og sitt barn

Athugasemd

71 erindi. Á milli bl. 74 og 75 er seðill með þrem síðustu erindum kvæðisins. Hann hefur blaðsíðutalið 74a-75a. Á versóhliðinni (75a) er einungis krot.

32 (38r-54v (75-108))
Moyses rímur
Upphaf

... Barnsins syk[00] bydur þá ...

Athugasemd

Þrettán rímur. Byrjar í fyrstu rímu, vantar framan af. Einnig virðist vanta texta milli bl. 46 og 47, aftan af áttundu rímu og framan af níundu. Ruglingur er á blaðsíðumerkingum. Sjá athugasemd neðar.

Efnisorð
33 (55r-55v (109-110))
Eilífi einvaldsherra
Titill í handriti

Bæn kóng Manasses í því babilóniska fang[e]l[s]i. Með tón svo sem Konung Davíð sem kenndi.

Upphaf

Eilífi einvalds herra / og vorra forfeðra Guð ...

Lagboði

Konung Davíð sem kenndi

Athugasemd

10 erindi

34 (55v-57r (110-113))
Þolinmæðinnar dæmi dýrt
Titill í handriti

Stella patientiæ. Jobs raunir. Með lag sem Morgunstjarnan skín nú skær.

Upphaf

Þolinmæðinnar dæmi dýrt / af drottins ástvin er oss skýrt ...

Lagboði

Morgunstjarnan skín nú skær

Athugasemd

17 erindi

35 (57r-57v (113-114))
Ó Jesú minn eðla góði
Titill í handriti

>Bæn hins heilaga Bernhardi í hvörri hann huggar og gleður sig við nafnið Jesú. Tón: Guðs föðurs á him.

Upphaf

Ó Jesú minn eðla góði / Ó Jesú Guðs son sætasti ...

Lagboði

Guðs föður á him.

Athugasemd

9 erindi

36 (57v (114))
Syndgaðu ekki sæta barn
Titill í handriti

Nokkur vers, bæði börnunum og hinum eldri, sem góðum börnum eru í ótta og ástsemi við sinn himneska föður samlíkir til viðvörunar send og samin. Tón: Ekkert er bræð[ra]

Upphaf

Syndgaðu ekki sæta barn / eg segi þér ...

Lagboði

Ekkert er bræðra elskulegra

Athugasemd

2 erindi. Vantar aftan af seinna erindinu. Nótur.

37 (58r (115))
Kvæði, brot
Upphaf

... þó svo sárkramdist / og fyrst að í fórn sig færði / þá mun hann hafa herlegt sáð ...

Athugasemd

Hálft 3. erindi. Vantar framan af. Síðasta erindið hefst á: Sjá þú maður ef ekki er ...

38 (58r-58v (115-116))
Dýrðlegur er og drottni kær
Titill í handriti

Nokkur sálmvers um góða og guðlega burtför. Með tón svo sem Faðir vor sem á himnum ert etc.

Upphaf

Dýrðlegur er og drottni kær / dauði réttlátra, lesum vær ...

Lagboði

Faðir vor sem á himnum ert

Athugasemd

9 erindi

Efnisorð
39 (58v-59r (116-117))
Þegar að minnkar mátturinn
Titill í handriti

Versakorn með tón: Jesús Kristur á krossi

Upphaf

Þegar að minnkar mátturinn / málið þverrar og skynsemin ...

Lagboði

Jesús Kristur á krossi

Athugasemd

4 erindi

40 (59r-59v (117-118))
Ég þrey af öllu hjarta
Titill í handriti

Söngvísa með hvörri vonandi manneskja í drottni segir sinn dauða velkominn. Úr þýsku skrifaður. Með tón svo sem Kært lof Guðs kristni alltíð

Upphaf

Ég þrey af öllu hjarta / eftir fagnaðarstund ...

Lagboði

Kært lof Guðs kristni ætíð

Athugasemd

12 erindi

41 (59v (118))
Vert herra Jesú minn hjá mér
Titill í handriti

Það er fullkomnað. Andlátsorð doktors Baldvini hvör eð kallaður var ljós norðurálfunnar. Í 8 bænakornum fram töluð. Tónus: Ó Jesú þér

Upphaf

Vert herra Jesú minn hjá mér / mitt þegar líf skal héna ...

Lagboði

Ó Jesú þér

Athugasemd

1 erindi

42 (60r-60v (119-120))
Hvað mun vor auma ævi hér
Titill í handriti

Þakklætis- og bænarvísa. 1634. Að liðnum þeim snjósama hungurs og harðinda vetri skrifuð. Tónus: Ó Jesú þér æ viljum vér etc

Upphaf

Hvað mun vor auma ævi hér / annað en hlaup til grafar ...

Lagboði

Ó Jesú þér æ viljum vér

Athugasemd

11 erindi

43 (60v (120))
Upplít mín sál úr sorgum þeim
Titill í handriti

Enn önnur nýársvísa. Með tón sem Jesú Kriste þig kalla etc

Upphaf

Upplít mín sál úr sorgum þeim / sem þú átt við að stríða ...

Lagboði

Jesú Kriste þig kalla ég á

Athugasemd

4 erindi varðveitt. Vantar aftan af.

44 (61r-61v (121-122))
Minningarkvæði, brot
Upphaf

... háfræg af hvers kyns sóma / áttu þau börnin einka [góð]? ..

Athugasemd

Tæp 9 erindi varðveitt hér. Niðurlag kvæðis um Guðbrand biskup og Halldóru Árnadóttur. Fyrri helmingurinn er á 67r-v. Röð blaðanna hefur ruglast en þetta blað ætti að vera fyrir aftan bl. 67.

45 (61v-63v (122-126))
Herrans hér postula
Titill í handriti

Postulavísur með bragarhátt: Svo sem Ellikvæði.

Upphaf

Herrans hér postula / hefja vil ég nöfn að tjá

Lagboði

Ellikvæði

Athugasemd

41 erindi

46 (64r (127))
Sálmur, brot
Upphaf

... [s]ýnt oss vægð / sem er hans ljúfur vandi.

Athugasemd

Vantar framan af. Niðurlag erindis og sjö næstu erindi varðveitt. Síðasta erindið hefst á: Blessi Guð og bevari þig ...

Efnisorð
47 (64v-65r (128-129))
Þjáður og lúinn ligg ég hér
Titill í handriti

Sálmkorn ég mælti fram á ungum aldri er ég lá í bólunni á Háfsstöðum á Skagaströnd. Annó Kristí 1615 ætatis 19. Með lag: Þá linnir þessi líkams etc

Upphaf

Þjáður og lúinn ligg ég hér / lít til mín náðin skæra ...

Lagboði

Þá linnir þessi líkamsvist

Athugasemd

9 erindi

Efnisorð
48 (65r-65v (129-130))
Minnstu önd mín þó mannraunir
Titill í handriti

Hugvekjukorn. Í sama tíma fram talað. Með lag: Óvinnanleg borg er vor Guð.

Upphaf

Minnstu önd mín þó mannraunir / margar þig kunni að fanga ...

Lagboði

Óvinnanleg borg er vor Guð

Athugasemd

5 erindi

49 (65v (130))
Minn Guð og mildi faðir
Titill í handriti

Þakklætisvísa ungmennanna sem guð leiddi miskunnsamlega aftur til lífs og heilbrigði úr þessari bólu sem nú grasseraði 1636. Með lag: Konung Davíð sem kenndi

Upphaf

Minn Guð og mildi faðir / mjúkt vil ég prísa þig ...

Lagboði

Konung Davíð sem kenndi

Athugasemd

Vantar aftan af. Sex og hálft erindi varðveitt.

Efnisorð
50 (66r (131))
Sálmur, brot
Upphaf

... syndafyrirgefning og frið / fylgi og lánið seinna ...

Viðlag

Um eilíf ár yfir með tár / ég nú Guði befala.

Athugasemd

Vantar framan af. Sjö og hálft erindi varðveitt. Síðasta erindið hefst á: Kristur minn hingað kjósi prest ....

Efnisorð
51 (66r-66v (131-132))
Þessum söfnuði frá eg fer / fel ég hann Guð á hendur þér ...
Titill í handriti

Grímseyjarkveðja 1624. Tón: Svo sem Faðir vor sem á

Upphaf

Þessum söfnuði frá ég fer / fel ég hann Guð á hendur þér ...

Lagboði

Faðir vor sem á himnum er

Athugasemd

10 erindi

52 (67r-67v (133-134))
Diktar lofkvæði Davíðs son
Titill í handriti

Ein söngvísa um gjöf Guðs blessuðu orða hingað í land hvörja sína náðargjöf hann sendi oss og sérlega opinberaði. Fyrir hönd síns manns og þénara, vors ógleymanlega og elsk[ulega] herra föðurs, biskups Guðbr(ands) Þorlákss(onar) (heilagrar minningar). Með hvörri og minnst verður á hans guðrækilega hérvist og fagnaðarsælt andlát. Eftir yfirsjón og áheyrn þess virðuglega herra Odds sáluga Ein(ars)s(onar) lofsamlegrar min(ningar). Hreint uppskrifuð etc. 1628.

Upphaf

Diktar lofkvæði Davíðs son / dýrðlegt konungur Salamon ...

Athugasemd

Vantar aftan af. Tíu og hálft erindi varðveitt. Niðurlag kvæðisins er á 61r-v en það 61. blað hefur upphaflega verið á þeim stað. Með nótum.

53 (68r (135))
Kvæði, brot
Upphaf

... [Það]? er djöflinum þægilegt / og þykir hind ...

Athugasemd

Vantar framan af. 14 erindi. Síðasta erindið hefst á: Veit mér að forðast syndasið ...

54 (68r-68v (135-136))
Guð er mín huggun, hjálp og traust
Titill í handriti

Útvalin kjörgrein [frúr] Sophiæ. Guð yfirgefur sína ekki. Tónus: Á þig alleina Jesú Krist.

Upphaf

Guð er mín huggun, hjálp og traust / heill mín og vonin tryggva ...

Lagboði

Á þig alleina Jesú Krist

Athugasemd

4 erindi

55 (68v-69r (136-137))
Völt og harðbýl er vistin sú
Titill í handriti

Sálmvísa um vora hégómlega ævi. Tónus: Náttúran öll

Upphaf

Völt og harðbýl er vistin sú / vær eigum hér á jörðu ...

Lagboði

Náttúran öll og eðli manns

Viðlag

Allt var það hryggð / stríð kvöl og styggð ...

Athugasemd

14 erindi

Efnisorð
56 (69v (138))
Sjá minn fulltrúi og frómur þjónn
Titill í handriti

Út af þeim 53. kapítula Esaja spámanns. Um kvöl og pínu herrans Kristí. Með lag svo sem Vor herra Jesús vissi það.

Upphaf

Sjá minn fulltrúi og frómur þjón / forsjáligana breyta mun ...

Lagboði

Vor herra Jesús vissi það

Athugasemd

Vantar aftan af. 4 og hálft erindi varðveitt.

57 (70r (139))
Kvæði, brot
Upphaf

... þínu hrósa / hvort að ég gjörði kjósa ...

Athugasemd

Vantar framan af. 5 og hálft erindi varðveitt hér. Síðasta erindið hefst á: Svo að um aldir alda / eg megi prísa þig ...

58 (70r-70v (139-140))
Ég þakka Guði eilífum
Titill í handriti

Nokkur þakklætisvers þeirri stúlkukind, kennd og kveðin sem drottinn góður lífgaði og læknaði eftir þunga þjáning. Með lag: Væri nú Guð oss ekki hjá.

Upphaf

Ég þakka Guði eilífum / af öllu hjarta mínu ...

Lagboði

Væri nú Guð oss ekki hjá

Athugasemd

7 erindi. Nafnið Margrét Guðmundsdóttir er falið í 6. erindinu. Á spássíu við fyrirsögnina er ártalið 1633.

59 (70v-71r (140-141))
Hvenær mun koma minn herrann sá
Titill í handriti

Nokkur orð þreyjandi sálar eftir herranum Jesú og hans blessaða dýrðarríki. Með fögru tvísöngslagi

Upphaf

Hvenær mun koma minn herrann sá / hvern ég girnist að sjá ...

Lagboði

Tvísöngslag

Athugasemd

14 erindi. Nótur. Á spássíu við fyrirsögnina er ártalið 1630.

60 (71r-72r (141-143))
Rís mér hugur við heimi
Titill í handriti

Viðvörunarvísa að menn afneiti ekki K(risti) í elsku veraldarinnar

Upphaf

Rís mér hugur við heimi / hatað fæ ég hann ekki þó ...

Athugasemd

15 erindi. Nótur.

61 (72r-73r (143-145))
Þann ágætasta aldingarð
Titill í handriti

Andleg paradís. Eður Salómons háfur. Þeim til fróðleiks og hugaryndis sem andligir eru. Tónus: Væri nú Guð oss ekki hjá.

Upphaf

Þann ágætasta aldingarð / í heiminum ég segi ...

Lagboði

Væri nú Guð oss ekki hjá

Athugasemd

17 erindi. Á spássíu eru biblíutilvísanir sem virðast eiga við textann.

62 (73r-73v (145-146))
Tími til alls án efa er
Titill í handriti

Sóknakveðja mín. Er ég fyrir norðan viðskildi 1631 og fór til Gr(íms)E(yjar) Með lag: Svo sem öll lukka gler etc.

Upphaf

Tími til alls án efa er / eins og Salamon kenndi ...

Lagboði

Öll lukka gleri líkust er

Athugasemd

Vantar aftan af. 9 erindi varðveitt hér.

63 (74r-74v (147-148))
Elías ævi hreina
Titill í handriti

Elías ævi. Með ýmsum vísnalögum [00] sem Maríu ævi

Upphaf

Elías ævi hreina / eg vil birta hér ...

Lagboði

Með ýmsum vísnalögum

Athugasemd

15 erindi

64 (74v (148))
En sem Elías góði
Titill í handriti

Önnur historía úr sama 17 kapít(ula) 3. Kóngabókar. Bragarh. sem Ellikvæði.

Upphaf

En sem Elías góði / er í staðnum Zarepta ...

Lagboði

Ellikvæði

Athugasemd

9 erindi

65 (75r-76r (150-152))
Tala textinn klári
Titill í handriti

Þriðja historía út af Elías spámanni úr 3. Kóngabók, 18. kap. Með bragar-h: sem vísurnar af brúðkaupinu í Kana.

Upphaf

Tala textinn klári / tók um hungurinn megn ...

Lagboði

Vísurnar af brúðkaupinu í Kana

Athugasemd

31 erindi

66 (76v-77r (152-153))
Maður maður minnst þann sið
Höfundur

sr. J. Þ.s.

Titill í handriti

Eitt fínt kvæði. Sr. J. Þ. S.

Upphaf

Maður maður minnst þann sið / menn hljóta allir deyja ...

Viðlag

Hegðan þín sé fín og fróm / ef forðast viltu hel ...

Athugasemd

10 erindi

67 (77r-77v (153-154))
Tímanum hef ég illa eytt
Titill í handriti

Annað heilagt kvæði. Sr. G. E. S.

Upphaf

Tímanum hef ég illa eytt / er mér það af hjarta leitt ...

Viðlag

Öll mín Jesús eymdarár / eiga snart að linna / ber þú mig til byggðanna þinna.

Athugasemd

21 erindi

68 (78r-79v (155-158))
Extract
Titill í handriti

Extract [00...00] skrifað frá Stuttgart, þann 21. [00...00]úarí annó 1648, um einn engil er birtist ein[um] frómum búramanni á tveimur aðskiljanlegum tímum í sínum víngarði.

Upphaf

Hér með ávísast að fyrir átta dögum þá gekk einn frómur búri ...

Skrifaraklausa

Þrykkt ár Kristí 1648. Af þessu aðsögðu má merkja að þessi mannsins vitran og frásögn hefur miklu meiri og lengri verið, þar hann hefur hana í 9 pósta saman dregið og er svo að merkja hér af að þetta sé ekki utan lítil og stuttur útdráttur af hans vitran etc.

Athugasemd

Laust mál. Með leiðréttingum á spássíum með sömu hendi. Fyrir neðan textann á 79v er neðri hluti síðunnar skilinn eftir auður.

Efnisorð
69 (80r-80v (159-160))
Lögfræði
Upphaf

... Nauðrán og kvennalegorð dæmist eftir því sem ...

Athugasemd

Eitt blað. Virðist vanta bæði framan og aftan af textanum. Annar skrifari en annars staðar í handritinu.

Efnisorð
70 (81r-85r (161-170))
Texti, óþekktur
Athugasemd

Laust mál. Vantar framan af. Ekki hefur tekist að finna hvaða texta um ræðir.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
86 blöð, þar með talið 37bis (blaðsíðumerkt 74a-75a). (195 mm x 164 mm. Blað 85r autt að hálfu og 85v85v autt. Blað 37bis er helmingi mjórra en hin, 194 x 86 mm að stærð.
Tölusetning blaða

Handritið hefur síðar verið blaðsíðumerkt með blýanti (1-170, 37bis er merkt 74a og 75a).

Handritið var blaðmerkt fyrir myndatöku.

Blöðum 49-54 var rangt raðað þegar handritið var blaðsíðumerkt en var endurraðað fyrir myndatöku. Blaðsíðumerking er því þannig þar: 98, 105-106, 99-102, 107-108, 103-104.

Blaðsíður 121-122 voru vitlaust staðsettar í handritinu og voru færðar á réttan stað fyrir myndatöku. Þær liggja því á milli blaðsíðna 134 og 135.

Ástand
  • Blöðin liggja óbundin í kverum eða stökum blöðum. Sumstaðar vantar blöð og textinn skerðist þess vegna, t.d. á eftir 28v, á undan 38r og víðar..
  • Röð blaða hefur ruglast á tveim stöðum. Í Mósesrímum ætti röðin að vera bl. 49, 53, 50-51, 54, 52 (bls. 98, 105-106, 99-102, 107-108, 103-104). Einnig ætti bl. 61 að færast aftur fyrir 67. (Þetta var lagað fyrir myndatöku.)
  • Handritið er mismikið skemmt, að mestu heilt framan af, bl. 1-37bis, en bl. 37-85 virðast vera verr farin að jafnaði, á köntum og hornum, svo að víða skerðist textinn smávægilega.
  • Bl. 55r (fremst í kveri, texti ótengdur undanfarandi kveri) er máð og illlæsilegt og virðist tæpast hafa verið í miðju handritinu frá upphafi.
Skrifarar og skrift
Tvær hendur að mestu. Líklega sex aðrar á styttri köflum.

I. BL. 1r-35v, 38r-46v, 76v-77v, ???skriftargerð.

II. Bl. 50r-51v, 53r-74v3, óþekktur skrifari, ???skriftargerð.

III. Bl. 36r-37bisr, óþekktur skrifari, ???skriftargerð

IV. Bl. 47r-49v, 52r-v, óþekktur skrifari, ???skriftargerð.

V. Bl. 74v4-76r, óþekktur skrifari, ???skriftargerð.

VI. Bl. 78r-79v, óþekktur skrifari, ???skriftargerð.

VII. Bl. 80r-v, óþekktur skrifari, ???skriftargerð.

VIII. Bl. 81r-85v, óþekktur skrifari, ???skriftargerð.

Nótur
Í handritinu eru fjórir sálmar með nótum:
  • Syndgaðu ekki sæta barn (57v)
  • Diktar lofkvæði Davíðs son (66r)
  • Hvenær mun koma minn herrann sá (70v)
  • Rís mér hugur við heimi (71r)
Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Nokkrar vísur koma fyrir utan aðaltextans:
  • 7v. Ég bið þig mig að annast þá 1 erindi. Skrifað þvert á síðu á upprunalega autt pláss neðarlega á síðu. Hönd I.
  • 7v. Vegsemd drottni sem vinnast má 1 erindi.
  • 34r. Af Guði fáðu gleði hlaðnar tíðir 2 erindi. Skrifuð þvert á síðu á upprunalega autt pláss neðarlega á síðu. Hönd I.
  • Nöfn hér og hvar á spássíum: Árni Pétursson (28v) Gottskálk (34r og 108v), Guðmundur (34r), Gottskálk Þorvaldsson (37bisv), Jón Skúlason (37bisv), Þuríður Guðmundsdóttir meh (37bisv), Guðrún (53v) (e.t.v. Guðrún Gunnarsdóttir), Ívar Þor[0] (63v), Jón Jóns (68r).
  • Stuttar athugasemdir eða krot á bl. 7v, 8v, 20v, 28v, 33v, 34r-v, 35r-v, 37bisr-v, 47r, 49v, 54v, 55r, 61v, 76v og 79v.
Band

Handritið liggur laust í pappírskápu.

Uppruni og ferill

Uppruni
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Handritaskrá Landsbókasafns.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 1. bindi, bls. 542.

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir bætti við skráninguna 14. janúar 2019; Margrét Eggertsdóttir yfirfór skráningu 2013 ; Karl Ó. Ólafsson skráði 2013 ; Sigríður H. Jörundsdóttir frumskráði og sameinaði skráningar 17. desember 2013 ; Handritaskrá, 2. b.
Viðgerðarsaga

Kristjana Kristjánsdóttir gerði við 1977.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Ó þú fallvalta veraldarvist
  2. Morgun og kvöldsálmar
    1. Heiður sé Guði á himni og jörð
    2. Heiður sé Guði á himni og jörð
  3. Vökumanns varfær lund
  4. Guðhræddrar kvinnu Guðrúnar
  5. Vil ég í Guði glaður
  6. Jesú sjálfur og Jóhannes líka
  7. Sönn dýrð föðurnum sungin sé
  8. Burt héðan heims frá stríðu
  9. Hvað hjartans kæran hafði mig
  10. Herra Jesú mín hjálp ertú
  11. Ég gef mig allan Guðs míns náð
  12. Ég vænti drottinn eftir þér
  13. Ó Jesú elsku hreinn
  14. Þeim nýja kóngi nýjan söng
  15. Lof sé þér herra hár
  16. Jesú minn trúr Jesú minn trúr
  17. Ó Jesú kær hjörtun áhrær
  18. Nýársgáfa
  19. Ó ver velkomið árið nýtt
  20. Mín hjartkær unnustan hvar ert þú
  21. Þú kristin sála þjáð og mædd
  22. Herra minn Guð sem húm og dag
  23. Réttlætis sanna sól
  24. Heyr mig ljúfasti herra minn
  25. Æski ég af innstu rótum
  26. Himneski faðir heyr þú mig
  27. Ó Jesú, Jesú, Jesús kær
  28. Vökuvarpa
  29. Allt eins og blómstrið eina
  30. Jesús frægstur frelsari minn
  31. Nýr minnis annáll einn er hér
  32. Moyses rímur
  33. Eilífi einvaldsherra
  34. Þolinmæðinnar dæmi dýrt
  35. Ó Jesú minn eðla góði
  36. Syndgaðu ekki sæta barn
  37. Kvæði, brot
  38. Dýrðlegur er og drottni kær
  39. Þegar að minnkar mátturinn
  40. Ég þrey af öllu hjarta
  41. Vert herra Jesú minn hjá mér
  42. Hvað mun vor auma ævi hér
  43. Upplít mín sál úr sorgum þeim
  44. Minningarkvæði, brot
  45. Herrans hér postula
  46. Sálmur, brot
  47. Þjáður og lúinn ligg ég hér
  48. Minnstu önd mín þó mannraunir
  49. Minn Guð og mildi faðir
  50. Sálmur, brot
  51. Þessum söfnuði frá eg fer / fel ég hann Guð á hendur þér ...
  52. Diktar lofkvæði Davíðs son
  53. Kvæði, brot
  54. Guð er mín huggun, hjálp og traust
  55. Völt og harðbýl er vistin sú
  56. Sjá minn fulltrúi og frómur þjónn
  57. Kvæði, brot
  58. Ég þakka Guði eilífum
  59. Hvenær mun koma minn herrann sá
  60. Rís mér hugur við heimi
  61. Þann ágætasta aldingarð
  62. Tími til alls án efa er
  63. Elías ævi hreina
  64. En sem Elías góði
  65. Tala textinn klári
  66. Maður maður minnst þann sið
  67. Tímanum hef ég illa eytt
  68. Extract
  69. Lögfræði
  70. Texti, óþekktur

Lýsigögn