Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 1002 4to

Saga Íslands og um endurskoðun lögbókar ; Danmörk, 1734

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-16r)
Memorial um Íslands fyrstu bygging og hvernig þar hófust lög
Titill í handriti

Memorial um Íslands fyrstu byggingu og hvernig hér hófust lög. Skrifað til víðari beþenkingar anno 1700

Upphaf

Anno 861 var Ísland fyrst fundið af víkingi þeim sem Nad-Oddur hét …

Niðurlag

… Þar eftir þá Kristján fyrsti með því nafni.

Skrifaraklausa

Eftir hendi Halldórs Einarssonar sem var sýslumaður í Þingeyjarþingi og deyði í bólunni 1707. Þetta stendur í kvartbókum Ass. Árna no. 207 og er uppskrifað í Kaupenhavn 1734 (er yfrið rangt og ruglingslegt svo það er að mestu ónýtt). (1r)

Efnisorð
2 (17r-23r)
Lítið ágrip um laganna reformation á Íslandi
Titill í handriti

Lítið ágrip um laganna reformation á Íslandi

Upphaf

Anno 1688.14. aprilis …

Niðurlag

… Um haustið 27. septembris andaðist Benedikt lögmaður Þorsteinsson.]

Athugasemd

Athugasemdir og viðbætur Jóns Ólafssonar frá Grunnavík eru innan hornklofa.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
24 blöð (205 mm x 164 mm). Auð blöð: 16v og 23v-24r.
Kveraskipan

Þrjú kver.

  • Kver I: blöð 1–8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9–16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17–24, 4 tvinn.

Umbrot
  • Eindálka.
  • Leturflötur er 175 mm x 120 mm.
  • Línufjöldi er 28.
  • Leturflötur afmarkaður með broti á blaði.
  • Griporð.
  • Fyrirsagnir og ártöl á spássíum.
Ástand
  • Blöð 1r og 24v eru dökk af óhreinindum.
  • Blaðhorn og jaðrar eru snjáðir.
  • Blað 24 var rifið.
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Erlendur Ólafsson, síðfljótaskrift en nöfn manna og staða skrifuð með sprettskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Spássíugreinar á blöðum 2v-5v og 6v-15v.
  • Á blaði 16v stendur: Harlemmer-Olie.
  • Útreikninga á blöðum 23v-24v.
Band

Óbundið.

Uppruni og ferill

Uppruni
Danmörk 1734

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Örn Hrafnkelsson frumskráði, 9. mars 2012 ; Handritaskrá, 1. b.
Viðgerðarsaga
Athugað fyrir myndatöku 2012. Myndað í mars 2012. Gert við tvær arkir, 14. mars 2012.
Lýsigögn
×

Lýsigögn