Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 747 fol.

Sögubók og -þátta ; Ísland, 1871-1875

Titilsíða

Nokkurar sögur og þættir af fornaldarmönnum Íslendinga. Í hjáverkum uppskrifaðar frá vordögum 1871 til vordaga 1873 af Guðlaugi Magnússyni og Guðmundi Magnússyni vinnumönnum á Hafursstöðum á Fellsströnd og Breiðabólstað á Fellströnd

Upphaflegur titill: […] af Guðlaugi Magnússyni vinnumanni á Hafursstöðum á Fellsströnd

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1v)
Efnisyfirlit
Titill í handriti

Innihald

Athugasemd

Guðmundur Magnússon bætir hér við því efni sem hann skrifar

2 (2r-90r)
Njáls saga
Titill í handriti

Sagan af Njáli Þorgeirssyni og sonum hans

Skrifaraklausa

Enduð 28. janúaríus 1872 af Guðlaugi Magnússyni. GMS (90r)

Athugasemd

Fangamark skrifara með stóru letri og ögn skreyttu

3 (90v-114v)
Svarfdæla saga
Titill í handriti

Sagan af Svarfdælum

Skrifaraklausa

Enduð þann 14. febrúar 1872 af G[uðlaugi] Magnússyni (114v)

4 (115r-122v)
Valla-Ljóts saga
Titill í handriti

Sagan af Vallna-Ljót

5 (123r-144r)
Víga-Glúms saga
Titill í handriti

Sagan af Víga-Glúm

6 (144v-146v)
Þorvalds þáttur tasalda
Titill í handriti

Þáttur af Þorvaldi tasalda Steingrímssyni

7 (147r-173v)
Reykdæla saga
Titill í handriti

Sagan af Reykdælum eða Vémundi kögur og Víga-Skúta

Skrifaraklausa

Enduð 24. apríl 1872 af Guðlaugi Magnússyni (173v)

8 (174r-196r)
Bjarnar saga Hítdælakappa
Titill í handriti

Sagan af Birni Hítdælakappa

9 (196v-196v)
Ólafs saga helga
Titill í handriti

Viðbætir úr Fornmannasögum IV., bls. 109 III

Athugasemd

Hluti af sögunni

Efnisorð
10 (197r-202r)
Þorsteins saga hvíta
Titill í handriti

Þáttur af Þorsteini hvíta

11 (202v-216r)
Vopnfirðinga saga
Titill í handriti

Sagan af Vápnfirðingum eður Brodd-Helga

12 (216r-216r)
Landnámabók
Titill í handriti

Viðbætir (sjá Landnámabók bls. 238-241)

Athugasemd

Hluti af verkinu

Efnisorð
13 (216v-220r)
Þorsteins þáttur stangarhöggs
Titill í handriti

Þáttur af Þorsteini stangarhögg

Skrifaraklausa

Endaður þann 29. apríl af Guðlaugi Magnússyni (220r)

14 (220v-223v)
Brandkrossa þáttur
Titill í handriti

Þáttur af Brandkrossa eður um uppruna Droplaugarsona

15 (223v-238v)
Droplaugarsona saga
Titill í handriti

Sagan af Helga og Grími Droplaugarsonum

16 (239r-340v)
Egils saga Skallagrímssonar
Titill í handriti

Sagan af Agli Skalla-Grímssyni

Skrifaraklausa

Skrifuð af Guðmundi Magnússyni á Breiðabólstað á Fellsströnd í Dalasýslu (340v)

17 (341r-342v)
Tímatal í Egils sögu
Titill í handriti

Tímatalið í Egils-sögu eftir ritgerð Guðbrandar Vigfússonar í Safni til sögu Íslands

Skrifaraklausa

Hafa skrifað þessa sögu bræðurnir Guðlaugur Magnússon og Guðmundur Magnússon á Hafursstöðum og Breiðabólstað á Fellsströnd í Dalasýslu. Endir. GMS 1875

Athugasemd

Fangamark skrifara með stóru letri

Efnisorð
18 (344r-362r)
Gunnlaugs saga ormstungu
Titill í handriti

Sagan af Gunnlaugi ormstungu og Skáld-Hrafni

Skrifaraklausa

Enduð 4. apríl 1874 af Guðmundi Magnússyni á Breiðabólstað (362r)

Athugasemd

  • Af blaði 343 er efri helmingur varðveittur, á r-hlið er titill, samhljóða þeim á 344r, en texti sögunnar á v-hlið
  • Örkin með blöðum 344 og 355 er hugsanlega skrifuð með sömu hendi en síðar, e.t.v. af því að upphaflega örkin hafi af einhverjum ástæðum ekki verið notuð. Blaðhelmingurinn 343 væri þá leifar upphaflegu arkarinnar

19 (362v-363v)
Stúfs þáttur
Titill í handriti

Þáttur af Stúf skáldi

Skrifaraklausa

Enduð 4. apríl 1874 af G[uðmundi] Magnússyni á Breiðabólstað (363v)

Athugasemd

Styttri gerð þáttarins

20 (364r-371r)
Þorsteins saga Síðu-Hallssonar
Titill í handriti

Sagan af Þorsteini Síðu-Hallssyni

Skrifaraklausa

Enduð 15. apríl 1874 af Guðmundi Magnússyni á Breiðabólstað (371r)

Athugasemd

Óheil

21 (371v-374r)
Þorsteins þáttur tjaldstæðings
Titill í handriti

Þáttur [af] Þorsteini tjaldstæðingi

Skrifaraklausa

Enduð á sumardaginn fyrsta af Guðmundi Magnússyni (374r)

22 (374v-378v)
Egils þáttur Síðu-Hallssonar
Titill í handriti

Þáttur af Egli Síðu-Hallssyni

Skrifaraklausa

Enduð 20. mars 1875 af Guðmundi Magnússyni á Breiðabólstað á Fellsströnd og illa skrifuð (378v)

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Blaðfjöldi
379 blöð (327 mm x 208 mm). Auð blöð: 214r og 379r
Tölusetning blaða
Gömul blaðsíðumerking 1-472 (2r-238v)
Ástand
Vantar í handritið milli blaða 367-368
Skrifarar og skrift
Tvær hendur ; Skrifarar:

I.Guðlaugur Magnússon(1r-294v)

II. Guðmundur Magnússon (1r-1v, 295r-378v)

Skreytingar

Víða í uppskrift Guðlaugs (1r-294v) eru litskreyttar myndir af sögupersónum og atburðum úr sögunum. Myndirnar þekja ýmist heilsíðu, hálfsíðu eða þriðjung af síðu. Manna- og atburðamyndir: 9v, 10r, 12r, 15r, 21r, 25r, 32r, 35r, 41r, 42v, 43r, 46v, 48v, 52r, 55v, 59v, 67v, 68v, 82v, 85v, 89r, 91v, 96v, 102r, 106v, 111v, 118v, 126r, 129r, 135r, 137r, 140r, 157r, 163v, 165v, 170r, 172v, 176v, 184v, 188r, 199v, 200v, 203v, 218r, 225v, 233v, 239v, 255v, 259r, 273r, 288v

Upphafsstafir mjög víða stórir og skreyttir.

Á stöku stað í uppskrift Guðmundar (295r-378v) eru upphafsstafir ögn skreyttir.

Rauður litur víða settur yfir nöfn.

Framan við sögur skrautbekkir: 2r, 90v, 115r, 123r, 144v, 147r, 174r, 197r, 202v, 216v, 223v,

Bókahnútar: 173v, 196r, 220r

Litaður titill, litir rauður og blár: 364r 364r

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Annar skrifari handritsins, Guðmundur Magnússon, var föðurbróðir Magnúsar Jónssonar sem átti handritið frá 1915-1943. Björn Jónsson tengdasonur Magnúsar átti handritið frá 1943-1965 (sbr. P.E.Ó.)
Band

Óbundið

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1871-1875
Ferill
Eigandi handrits: G[uðmundur] Magnússon (379v), [Magnús Jónsson Ási við Stykkishólm], Björn Jónsson, Kóngsbakka, Helgafellssveit
Aðföng
Björn Jónsson, á Kóngsbakka í Helgafellssveit, seldi, 1965

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Eiríkur Þormóðsson lagfærði 21. september 2009Handritaskrá, 3. aukab. ; Sagnanet 16. febrúar 1999
Viðgerðarsaga

Athugað 1999

viðgert

Athugað fyrir myndatöku 18. mars 2011.

Myndað í apríl 2011.

Myndir af handritinu

Myndað fyrir handritavef í apríl 2011.

Notaskrá

Lýsigögn