Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 158 8vo

Ferðalýsingar og biskupaannáll ; Ísland, 1755-1800

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-26v)
Reisubók séra Ólafs Egilssonar
Titill í handriti

Reisubók sáluga síra Ólafs Egilssonar sem hertekinn var með öðrum í Vestmannaeyjum og fluttur af landi burt Anno Kristí MDCXXVII. Hans frásögn hljóðar svo.

2 (27r-52r)
Lýsing Grænlands
Titill í handriti

Ný relatio um Grænland. Um þess fornu bygging og eyðilegging þeirrar sömu. Þess afstöðu, og háttalag til sjós og lands og þess núverandi innbyggjara ásigkomulag fyrst 1724. Samantekin af prestinum sr. Hans Egede, þangað sendum með þeim er þar síðast settu byggð sína. Nú anno 1729 nokkuð umbreytt af einum manni sem um nokkurn tíma verið hefur í Grænlandi. Þrykkt í Kaupmannahöfn. 1729.

3 (53r-65r)
Biskupaannálar
Höfundur
Titill í handriti

Nokkuð um biskupa sem verið hafa í Skálholti og hvað við hefur borið í þeirra tíð.

Athugasemd

Brot.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
i + 65 + i blað (164 mm x 104 mm). Auð blöð: 52v, pár á blaði 65v.
Tölusetning blaða

Tíunda hvert blað tölusett með blýanti fyrir myndatöku.

Skrifarar og skrift
Þrjár hendur ; Skrifarar:

Jón Helgason í Bjarnastaðagerði. Aðrir skrifarar óþekktir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á fremra saurblaði 1r stendur: Þessa herleiðingarsögu á Þorsteinn Jónsson

Pár á fremra saurblaði 1r og 65v.

Band

Skinnkápa.

Innan á kápu að framan og aftan er skrifaður texti á latínu og einnig á aftara saurblaði 1r-1v, sem áður var líklega spjaldblað.

Á fremra saurblaði 1r er límd prentuð mynd úr tímaritinu Die Dänische Fama.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1755-1800
Ferill

Á blaði 65v standa ýmis nöfn, m.a.: Kverið er eign madame Halldóru Guðmundsdóttur, Ao. 1755.

Einnig Einar Illugason og Jón Guðmundsson.

Á fremra saurblaði 1r stendur: Þessa herleiðingarsögu á Þorsteinn Jónsson

Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Örn Hrafnkelsson las yfir og bætti við, 14. desember 2010 ; Bragi Þorgrímur Ólafsson frumskráði fyrir myndvinnslu, 4. nóvember 2009 ; Handritaskrá, 2. b.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn