Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 512 e 4to

Tyrkjaránið ; Danmörk, 1830-1880

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-10v)
Uppskriftir Jóns Sigurðssonar varðandi Tyrkjaránið
Titill í handriti

Um þau sorglegu hrygðartíðindi, sem skeðu og til féllu í Vestmannaeyjum, frá þeim XVII. degi Julii til þess XIXda á þessu ári anno 1627 af morðlegri umgengni þeirra aumu blóðhunda, sem af Tyrkjans valdi sendir voru.

Vensl

Rask 30 4to.

Skrifaraklausa

Rask Nr. 30 4to. í bók frá Holti í Önundafirði sem sr. Jón Ásgeirsson hefir átt. Saga þessi er þar með hönd sem sýnist vera síra Magnús Snæbjarnarsonar eða honum samtíða. NB. sama frásaga í kveri Ingimundar Grímssonar frá Miðhúsum á Reykjanesi, skr. c. 1790. 12 o.

Efnisorð
2 (11r-11v)
Sendibréf
Athugasemd

Þetta er skrifað eptir bréfi Þorleifs Magnússonar, skrifað Anno 1627, þann 17. August.

3 (12r-13v)
Sendibréf
Athugasemd

Af bréfi biskupsins Herra Odds Einarssonar.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
14 blöð (211 mm x 172 mm). Auð blöð: 14
Skrifarar og skrift
Ein hönd; Skrifari:

Jón Sigurðsson, snarhönd, eiginhandarrit.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Skrifað með hendi Jóns Sigurðssonar á bl. 2r: í kveri Ingim. b. v. sögu um séra Einar Sigurðarson, að hann hafi verið blindur, lagst á bæn og haft þá burt. N. B. sr. Einar + 1626, árinu fyrir.
  • Skrifað með hendi Jóns Sigurðssonar á bl. 6v: NB. um Guðrúnu, b.v. í kveri Ingim.
  • Skrifað með hendi Jóns Sigurðssonar á bl. 10v: NB. Í kveri Ingim Grímss. er b.v. teiknum, sem sáust á undan því að ránið varð.

Uppruni og ferill

Uppruni
Danmörk, Kaupmannahöfn 1830-1880.
Ferill
JS 512 4to hafði að geyma safn og minnisgreinir Jóns Sigurðssonar, lýtur einkum að ráni Tyrkja 1627 (enn fremur Spánverja 1615, ránsmönnum á Langanesi 1765 og í Færeyjum). Sumt í þessum böggli er frá Finni Magnússyni.
Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir frumskráði, 8. mars 2010 ; Handritaskrá, 3. b.
Lýsigögn
×

Lýsigögn