Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 401 XXIV 4to

Ljóð sr. Jóns Þorgeirssonar ; Danmörk, 1830-1880

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-11v)
Ljóð sr. Jóns Þorgeirssonar
Upphaf

Dóma grundar aldrei ann ...

Ábyrgð
Athugasemd

Seðlar með upphafslínum ljóða sr. Jóns og vísun Jóns Sigurðssonar í hvar þau er að finna. Einnig ljóð sem Jón hefur skráð upp í heild sinni.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
11 seðlar. (133-181 mm x 87-141 mm). Auð blöð: öll versóblöð.
Skrifarar og skrift
Ein hönd; Skrifari:

Jón Sigurðsson, sprettskrift.

Band

Safn lausra blaða og miða.

Uppruni og ferill

Uppruni
Danmörk, Kaupmannahöfn 1830-1880.
Ferill
JS 401 4to hafði að geyma samtíning Jóns Sigurðssonar um ýmsa menn og var því skipt upp í einingar eftir nöfnum þessara manna. Í JS 401 4to voru 463 blöð.
Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir yfirfór skráningu fyrir myndatöku 21. september 2010 Sigríður Hjördís Jörundsdóttir frumskráði, 24. febrúar 2010 ; Handritaskrá, 3. b.
Lýsigögn
×

Lýsigögn