Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 36 4to

Samtíningur ; Ísland, 1798

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r)
Kristilegt rit, niðurlag
Upphaf

vor guð hefur skapað himin og jörð …

Niðurlag

Ég keisari Leopoldus hræðist ei þínar hótanir í því minnsta, heldur er mín stríðs makt og mitt sverð þér innan handar. Því mitt fólk vill heldur berjast en beygja sinn háls undir þitt ok. Er ég því til reiðu og mitt fólk að berjast móti þér. Hér með heilsast þér hofmóðugi keisari, líka sem þú hefur mér heilsað svo framarlega sem þú vilt það meðtaka, þitt bréf akta ég að engu og er ég ei kvíðandi fyrir því. Finis.

Athugasemd

Niðurlag á kristilegu riti

2 (1r-2r)
Draumur kvinnu Pilati
Titill í handriti

Hér skrifast draumur kvinnu Pilati hvern Josephus sagnameistari hefur skrifað sem þá var skrifari í Jerúsalem

Efnisorð
3 (2r-3v)
Sólarljóð
Titill í handriti

Hér skrifast Sólarljóð Sæmundar fróða

Athugasemd

Fyrsta vísa í handritinu er 25. vísa kvæðisins

4 (3v-19r)
Konungs skuggsjá
Titill í handriti

Nokkrar dæmisögur úr Spekulum regale eður Kóngs Skuggsjón

Athugasemd

Hluti af verkinu

5 (19r-29r)
Viktors saga og Blávus
Titill í handriti

Hér byrjar söguna af Victor og Bláus

Efnisorð
6 (29r-37r)
Ísland
Titill í handriti

Ísland

Upphaf

Sú fyrst öldin er frjálsasta

Skrifaraklausa

Endir kvæðisins, þann 29. aprili 1798 (37r

7 (37v-47r)
Nikódemusarguðspjall
Titill í handriti

Evangelium sem Nicodemus hefur skrifað

8 (47r-51v)
Vitranir og draumar
Titill í handriti

Hér skrifast nokkrir fyrirburðir, vitranir og draumar

Athugasemd

Vitranir og draumar sr. Jóns Eyjólfssonar 1683, sr. Magnúsar Péturssonar 1628, Hávarðs Loftssonar 1628, Gísla Þórðarsonar 1628, Ólafs Oddssonar 1627

9 (52r-53v)
Út af sjón og draum
Titill í handriti

Einn kveðlingur út af sjón og draum síra Magnúsar Péturssonar á Hörgslandi 1636. Kveðið af Þorsteini Jónssyni

Upphaf

Lýðum vil ég láta í té

Efnisorð
10 (53v-54r)
Kristileg dæmisaga
Titill í handriti

Ein frásaga

Efnisorð
11 (54r-59v)
Heimspekingaskóli
Titill í handriti

Heimspekingaskóli kveðinn af Guðmundi Bergþórssyni sáluga

Upphaf

Þegar fólki er þanninn vart

12 (60r-62r)
Mælskan fróð
Titill í handriti

Hér sé eigi mælskan fróð/margir lesi þá iðju

Athugasemd

Án titils

Upphafsorðið Hér er neðst á blaði 59v

13 (62r-63r)
Morgunvísur
Titill í handriti

Morgunvísur

Upphaf

Nóttin dökkva og dimma

14 (63r-74v)
Af þeim þrændsku höfnum
Titill í handriti

Af þeim þrændsku höfnum, útgefnum af Philaletho

Athugasemd

Vantar aftan af

15 (75r-75v)
Gunnarsslagur
Titill í handriti

Ein stutt lífshistoría af Gunnari Hámundarsyni á Hlíðarenda, snúin á ljóðmæli af síra Gunnari Pálssyni á Hjarðarholti, útdregin af Njáls sögu

Vensl

Í ÍB 381 8vo er kvæðið nefnt Gunnarsslagur

Upphaf

Getið er um góðan mann

Athugasemd

Vantar aftan af

16 (76r-77r)
Ævintýri af Oddi nokkrum
Titill í handriti

sín síðasta nótt. Fóru þá allir að sofa

Athugasemd

Vantar framan af

Efnisorð
17 (77r-77v)
Draumur postulans
Titill í handriti

Hér skrifast draumur postula[n]s Péturs

Efnisorð
18 (77v)
Nafnavísur
Upphaf

Síra Þorstein ég sé og finn

Efnisorð
19 (78r-78v)
Þorkels saga aðalfara
Upphaf

Á dögum Gorms þess gamla í Danmörku var einn maður kallaður Þorkell …

Athugasemd

Aðeins upphaf og örstutt ágrip

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
78 blöð (220 mm x 170 mm).
Umbrot
Griporð á flestum síðum.
Ástand

Á eftir blöðum 74 og 75 vantar blað/blöð.

Fáein blöð svo trosnuð til jaðranna að ekki verða allar línur eða hlutar lína lesnar þar.

Skrifarar og skrift
Ein hönd að mestu

Óþekktur skrifari.

Skreytingar

Bókahnútur: 59v.

Band

Spjaldblöð að mestu leyti horfin, af aftara spjaldblaði eru eftir slitrur úr prentuðu riti með Ólafs sögu Tryggvasonar.

Skinnband, þrykkt.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland [1798?]
Ferill

Eigandi handrits: Sigurður Sigurðsson (78v).

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Örn Hrafnkelsson lagaði skráningu fyrir birtingu mynda16. júní 2009 ; Eiríkur Þormóðsson lagfærði 1. apríl 2009 ; Handritaskrá, 2. b. ; Sagnanet 18. ágúst 1998.
Viðgerðarsaga

Athugað 1998.

Autt viðgerðarblað milli blaða 41 og 42, sem og aftast.

Myndir af handritinu
46 Spjaldfilma pos 16 mm ; spóla neg 16 mm. Samtíningur.

Lýsigögn