Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

ÍBR 113 4to

Samtíningur ; Ísland, 1600-1799

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-35v)
Norsku lögin
Athugasemd

Brot úr norsku lögunum á íslensku skrifað á 18. öld.

Efnisorð
2 (36r-64v)
Kirkjuskipan
Athugasemd

Brot úr kirkjuskipan á dönsku, skrifað á 18. öld.

3 (65r-79v)
Dómabók
Athugasemd

Brot úr dóma og skjalabók 1463-1594.

Efnisorð
4 (80r-90v)
Hugrás
Athugasemd

Brot úr ritgerð séra Guðmundar Einarssonar á Staðastað gegn Jóni lærða.

Með sömu hendi og 3.

Efnisorð
5 (91r-104v)
Predikanir
Athugasemd

Brot úr predikunum frá 17. öld.

Efnisorð
6 (105r-141v)
Bænadagar
Athugasemd

Skipanir Gísla byskups Þorlákssonar um bænadaga og bænadagspredikanir, hér var og brot úr bréfabók Eggerts sýslumanns Björnssonar í Skarði; er nú afhent Þjóðskjalasafni og sett inn í bréfabók hans þar.

Efnisorð
7 (142r-145v)
Lagagreinar
Athugasemd

Aftan við eru 4 blöð með tilvísunum í lagagreinar, brot: A og B (norsku lögin?).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
144 blöð, auk þess fimm auð viðgerðarblöð milli blaða 35 og 36 (2), 64 og 65 (1), 79 og 80 (1) og 104 og 105 (1) (210 mm x 170 mm).
Skrifarar og skrift
Ýmsar hendur ; Skrifarar:

Óþekktir skrifarar.

Fylgigögn

Fimm viðgerðarblöð milli blaða 35 og 36 (2), 64 og 65 (1), 79 og 80 (1) og 104 og 105 (1).

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1600-1799
Ferill

Bjarni Bogason stúdent hefur haft handritið að láni 1772 frá Halldóri Jónssyni lögmanni á Vígholtsstöðum. Átt hefur það síðar Skúli Magnússon sýslumaður á Skarði (og líklega hafa fyrri Skarðverjar átt það. Samanber blað 1).

Áður ÍBR B. 201.

Aðföng

Landsbókasafn keypti handritasafn Reykjavíkurdeildar Hins íslenska bókmenntafélags 1901.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigrún Guðjónsdóttir frumskráði fyrir myndvinnslu, 4. október 2010 ; Handritaskrá, 3. b.
Viðgerðarsaga

Athugað fyrir myndatöku 20. október 2010. Laus blöð.

Myndað í nóvember 2010.

Athugað 1997

Myndir af handritinu

Myndað fyrir handritavef í nóvember 2010.

Lýsigögn
×

Lýsigögn