Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

ÍBR 3 4to

Sögubók ; Ísland, 1816-1818

Titilsíða

Sögur af nokkrum Íslendingum, sem á fyrri öldum hafa öðrum fremur hreysti og hugprýði sýnt. Skrifaðar í vetrar hjáverkum að Starrastöðum, frá anno MDCCCXVI til MDCCCXVIII. (1r)

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1v)
Efnisyfirlit
Titill í handriti

Innihald bókarinnar

Skrifaraklausa

Ritaðar eftir réttustu exemplarium sem ég hefi við|hönd haft geta fengið.|Einar. (1v)

2 (2r-66v)
Ljósvetninga saga
Titill í handriti

Sagan af Guðmundi ríka, Þorgeiri goða og Þorkeli hák. Hún kallast einnin Reykdæla eður Ljósvetninga saga

Vensl

Uppskrift eftir AM 514 4to: Descriptum est hoc exemplar juxta librum chartaceum in 4to in A. Magnæi Bibliotheca. num. 514. (2v)

Skrifaraklausa

Þessa sögu veit ég því miður hvörgi að fá rétta né alla. Hún sýnist líka af brotum saman skrifuð, hennar seinni partur er bæði lítt saman hangandi, margt … og fleiri feil þó annars merkilegt. (66v)

Athugasemd

Kafli XXII á blaði 40 og á innskotsblað 41 er stuttur útdráttur af kafla XXIII

2.1 (64v-66v)
Þórarins þáttur ofsa
3 (67r-90r)
Arons saga Hjörleifssonar
Titill í handriti

Sagan af Aroni Hjörleifssyni

Athugasemd

Á blaði 90v með hendi skrifara: Arons saga mun vera fyrst ritin anno 1360

4 (91r-162r)
Fóstbræðra saga
Titill í handriti

Fóstbræðra saga eður af Þorgeiri Hávarssyni [og] Þormóði Kolbrúnarskáldi

Athugasemd

Á blaði 161r eru vísur sem skrifari segir að vanti á blaðsíðu 168 (110v) og 183 (118r)

Á blaði 161v-162r er viðbót við söguna: Þennan kapítula vantar í flestar Fóstbræðrasögur, eður réttara hafa hann í staðinn 3ja annarra

5 (163r-174v)
Hrana saga hrings
Titill í handriti

Sagan af Hrana hring Egilssyni

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Vatnsmerki.

Blaðfjöldi
i + 174 + i blöð (162 mm x 201 mm). Autt blað: 162v.
Tölusetning blaða

Gömul blaðsíðumerking 1-326 (3r-174v).

Ástand
Blöðum hefur verið víxlað í bandi, samkvæmt blaðsíðumerkingu hefur Arons saga upphaflega staðið framan við Fóstbræðra sögu.
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Einar Bjarnason.

Skreytingar

Litskreyttir titlar, litur rauður: 67r, 91r, 163r.

Upphafsstafir oft stórir og ögn skreyttir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Orðamunur úr öðrum handritum neðanmáls og á spássíu.

Blað 41 er innskotsblað.

Band

Skinnband með tréspjöldum, þrykkt og með upphleyptum kili.

Límhlið fremra spjaldblaðs er ritað blað.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, Starrastöðum 1816-1818
Ferill

Guðmundur Einarsson sýsluskrifari, gaf Reykjavíkurdeild Hins íslenska bókmenntafélags 1865.

Áður ÍBR. A. 8.

2. bindi úr 5 binda sagnasafni: ÍBR 2 4to - ÍBR 6 4to.

Aðföng

Landsbókasafn keypti handritasafn Reykjavíkurdeildar Hins íslenska bókmenntafélags 1901.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Örn Hrafnkelsson lagfærði og bætti, 22. febrúar 2010 ; Sigrún Guðjónsdóttir lagaði skráningu, 30. mars 2009 ; Handritaskrá, 3. b. ; Sagnanet 6. júlí 1998
Viðgerðarsaga

Athugað 1998

Myndir af handritinu
161 spóla negativ 35 mm ; án spólu
Lýsigögn
×

Lýsigögn