Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

ÍBR 9 fol.

Skjöl ýmis og ritgerðir varðandi verslun, jarðeignir, afgjöld af landinu, búskap, prentverk, landsuppfræðingafélag, sýslutekjur, embætti og lén

Innihald

(1r-113v)
Skjöl ýmis og ritgerðir varðandi verslun, jarðeignir, afgjöld af landinu, búskap, prentverk, landsuppfræðingafélag, sýslutekjur, embætti og lén
Athugasemd

  • Merkast: Skipapóstar í Gullbringusýslu 1694, jarðaskjöl (Kalastaða, Sleggjulækar, Sigmundarstaða, Reykhóla og jarðeignaskipti Boga Benediktssonar í Hrappsey); »Landskylds Afbetalingen i Guldbringe Syssel« (m.h. Skúla fógeta 1779), »Til Höiere Eftertanke« (ritgerð um landshagi, dags. í Viðey 1787) »Svar þeim gefid, sem efterspurde« (athugasemdir Skúla fógeta við ritgerð Magnúsar Ketilssonar um sauðfjárhirðing), bréf Björns lögmanns Markússonar, síra Markúsar Magnússonar, Ólafs stiftamtmanns og Hannesar byskups Finnssonar um kúgildi, kvaðir og mannslán, (umburðarbréf Levetzows stiftamtmanns 1788, um landvarnir, afh. þjóðskjalasafni), »Chirurgi Odds Hjaltalíns Ágrip um oeconomisk- medicinskra planta notkun« (ehdr.).
  • Áður ÍBR. B. 102
  • Ferill. Keypt af Ólafi jústizráði Stephensen í Viðey.
  • Not. Jón Jónsson (Aðils): Einokunarverzlun, bls. 428. - Sunnanfari IV. bls. 37.

Lýsing á handriti

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Bragi Þorgrímur Ólafsson frumskráði fyrir myndvinnslu, 20. október 2009 ; Handritaskrá, 3. b.

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi , target="https://baekur.is/bok/000233966/3/1/Skra_um_handritasofn/?iabr=on#page/Bla%C3%B0s%C3%AD%C3%B0a+208++(228+/+612)/mode/2up" >bls. 208-209.

Myndir af handritinu

Myndað fyrir handritavef í október 2009.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn