Þessa sögubók á sá eruverðugi guðhræddi heiðursmann Jón Eyjólfsson, að Múla í Fljótshlíð, hvör eftir hans bón og forlagi honum og öðrum frómum mönnum til gamans, gleði og dægrastyttingar er saman skrifuð á Geldingalæk á Rangárvöllum af Páli Sveinssyni Anno Salvatoris 1667 (1r).
„Hér byrjar sögu Karl [!] Magnúsar þess rómverska keisara“
„Í Frankaríki var einn konungur sem hét Pipping …“
„… og beföluðu hann Guði og endar hér hans historíu.“
Við titil stendur með hendi Árna Magnússonar: Útsett úr dönsku.
„Hér byrjar saga af Grettir Ásmundarsyni“
„Ásmundur hærulangur var sonur Þorgríms hærukolls …“
„… Þorsteinn drómundur varð á sínum efstu dögum“
og lúkum vér hér sögu Grettirs Ásmundarsonar.
„Vísa kveðin um Grettir“
„Sterkan nefndu báls börk …“
„… veitti henni ekki af neitt.“
„Hér byrjar söguna af Máfus jarli hinum brögðótta“
„Svo byrjar þessa sögu …“
„… og var hún lengi með honum.“
Og endar hér sögu Máfuss jarls.
„Hér byrjar sögu Hrólfs kóngs kraka og kappa hans“
„Maður hét Hálfdan en annar Fróði …“
„… og svo nokkurt vopn hjá“
og endar hér sögu Hrólfs kóngs kraka og kappa hans.
„Hér byrjar sögu af keisara Oktavíanus og hans tveimur sonum Flóres og Lyon“
„Einn keisari að nafni Oktavíanus …“
„… varð keisari í Róm eftir föður sinn.“
Og endum vér hér sögu af Oktavíanus keisara og hans sonum.
„Hér byrjar sögu af Sigurgarði hinum frækna“
„Kóngur einn ágætur …“
„… mönnum í sínum ríkjum“
og endar hér sögu Sigurgarðs hins frækna.
„Hér byrjar sögu af Ector og köppum hans“
„Þeir menn sem mest stunda á jarðneska hluti …“
„… sjötíu og sjö betur.“
Og látum vér hér nú niðurfalla frásagnir afreksverka herra Ectors og kappa hans.
„Hér byrjar sögu af Sigurði þögla“
„Svo byrjar þessa frásögu að margir fyrirmenn …“
„… og er margt manna frá honum komið“
og lúkum vér hér historíu Sigurðar þögla.
„Þetta er upphaf á Grettirs sögu og vantar við þá sem í þessari bók skrifuð er“
„Önundur hét maður son Einars bullufóts …“
„… og hafði hann mannmargt og etc.“
42 kver.
Tvídálka.
Leturflötur 250 mm x 205 mm.
Breidd dálka er ca 85-100 mm.
Línufjöldi 38.
Strikað fyrir dálkum víðast hvar.
Síðutitlar, pennaflúraðir víða.
Kaflatöl fyrir miðjum dálki.
Stafir utan leturflatar á stöku stað, t.d. á bl. 133v.
Griporð, pennaflúruð víða.
Dekkra blek (svart) sums staðar í aftasta hluta handrits, t.d. á bl. 121v og áfram, og 153v og áfram.
Grófari pennadrættir á bl. 137v-138r, 139v-140r, 153v (dálkur a og 9 línur í dálki b).
Með hendi Páls Sveinssonar frá Geldingalæk á Rangárvöllum, blendingsskrift. Griporð með fljótaskrift.
Skrautbekkur efst á titilsíðu; flúraðir upphafsstafir.
Flúraðir titlar á bl. 1v, 27v, 61r, 79v, 93r, 113r, 120r, 135r, 161v.
Stórir skrautstafir (upphafsstafir) á bl. 1v (J), 27v (A), 61r (S), 79v (M), 93r (E), 113r (K), 120r (Þ), 135r (S), 161v (A).
Fylltir og flúraðir upphafsstafir kafla á flestum blöðum handrits, sjá til dæmis bl. 26r, 28v-29r, 39r-v, 56v, 60r, 71r, 76v, 99v, 121v, 146r (andlit í belgi þ), 154r, 164v.
Hönd teiknuð neðst á bl. 112v við sögulok, ígildi bókahnúts.
Hönd sem línufylling á bl. 44r og 82v.
Flúr sums staðar á síðutitlum, t.d. 145r.
Flúr sums staðar um griporð, t.d. 141v-142r.
Dálítið flúr upp úr leggjum stafa í efstu línu sums staðar, t.d. bl. 82v, 102r, 110r, 111r.
Band líklega frá lokum 17. aldar eða upphafi 18. aldar (320 mm x 270 mm x 100 mm). Hörð pappaspjöld, eða tréspjöld, klædd rauðu flaueli. Kjölur upphleyptur á uppistöðum. Snið gyllt.
Klæðning dálítið slitin, einkum á kili.
2 auð saurblöð fremst og 3 aftast tilheyra bandi.
Handritið liggur í öskju. Safnmark á kili gyllt.
Tveir fastir seðlar, báðir á dönsku.
Bréf til Kristjáns konungs fimmta frá Birni Þorleifssyni, presti í Odda og síðar biskupi á Hólum, dags. í Kaupmannahöfn 29. janúar 1692. Textinn er prentaður í Desmond Slay, On the origin of two Icelandic manuscripts, s. 149.
Seðill (tvinn) m.h. Árna Magnússonar með efnislýsingu. Aðeins 3 línur á aftara blaðinu.
Handritið var skrifað á Íslandi 1667 fyrir Jón Eyjólfsson, Múla í Fljótshlíð (Eyvindarmúla).
Björn Þorleifsson gaf Kristjáni fimmta konungi handritið 29. janúar 1692 (sbr. bréf fremst).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 16. nóvember 1984.