„Annálar um fjölda og aldur kirkna á Hólum í Hjaltadal síðan kristni kom á Ísland“
„Anno 1000 var lögtekin kristni á Íslandi …“
„… og tveir þverfingur betur.“
Handritið var áður í kveri með ritgerðum um fornyrði eftir Björn Jónsson á Skarðsá, "annálum Sæmundar fróða" o.fl.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar 1-5. Tvö öftustu blöðin eru ómerkt.
Stakt blað og þrjú tvinn.
Krassað hefur verið yfir texta á bl. 5v (10 línur). Miði var límdur yfir hann en hefur nú verið leystur frá.
Með hendi Björns Jónssonar á Skarðsá, blendingsskrift undir áhrifum frá fljótaskrift (sbr. Guðvarður Már Gunnlaugsson 2007).
Band frá júní 1977 (173 mm x 130 mm x 8 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 454, en virkt skriftartímabil Björns var 1600-1655.
Ritgerðin er tekin úr kveri sem átti Björn Magnússon á Munkaþverá (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. júní 1987.
Bundið í Kaupmannahöfn í júní 1977.