Níu kver.
Band (165 mm x 110 mm x 17 mm) er bókfellsband frá um 1800.
Á bókfelli í bandi markar fyrir línum og dálkastrikum dregnum með þurroddi og texta skrifuðum með dökku bleki auk leifa af rauðum stöfum.
Handritið var skrifað á Íslandi ca 1660-1680 (sjá seðil), en tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 398.
Árni Magnússon fékk handritið að láni á Þingvöllum, en árið 1710 gaf eigandinn, Guðrún Benediktsdóttir, honum það.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 4. desember 1975.