„Um Guðmund biskup“
„Þá liðið var frá hingaðburð …“
„ Gunnlaugur Ormsson með eigin hendi.“
Nokkrar greinar um Guðmund biskup Arason góða. Aftast eru þrjár vísur. Vantar inn í textann vegna þess að blöð hafa glatast.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með bláu bleki 1-6.
Eitt kver, 3 tvinn.
Með hendi Gunnlaugs Ormssonar (sbr. bl. 3r neðanmáls), blendingsskrift.
Árni Magnússon bætti titlinum við á seðil sem festur var við kápu (eldra band).
Band frá því í júlí 1975 (163 mm x 125 mm x 11 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúki. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju ásamt eldra bandi.
Eldra band, pappírskápa með marmaramynstri frá s.hl. 18. aldar. Blár safnmarksmiði á kili.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 398.
Árni Magnússon fékk frá Árna Sigurðssyni á Grund í Skorradal árið 1707 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. mars 1976.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1975. Eldra band fylgdi með.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.