„Tíðfordríf eður lítið annálskver: Sitt af hverju til sýnis viljann að birta. Til samans teiknað af mér Jóni Guðmundssyni ætatis. 70. Anno dni 1644.“
„Jón kall Gudmu(n)dsson í Gagnstaðarhjáleigu á Útmannasveit í Fljótsdalshéraði. Endaði 1644, 8. maí. “
Tileinkað Brynjólfi Sveinssyni biskupi. Handritið fjallar um miðaldabókmenntir, um yfirnáttúrulegar verur, náttúruundur Íslands, steina og ýmislegt tengt hjátrú, ágrip úr landafræði miðalda, ásamt fleiru.
Að auki finnst nafn höfundar á blaði 16r.
„Sannligum heiðursherra meistara Brynjólfi Sveinssyni biskupi að Skálholti …“
„… eða nokkuð gamalt.“
„70 kortsmálshættir. Við böl er að berjast.“
„Klén kortsmál kynnið bragar brjál …“
„Roðberts þáttur“
„Roðbert lýsti því fyrir sínum kompánum …“
„… heyra undir hans konungsdæmi.“
„Af Qvintiano keisara og hans spámönnum fjórum“
„Qvintiano hét einn keisari í Róm …“
„… En kærleikurinn [..] hvergi að hittast.“
„Finngálkn“
„Ein historía segir finngálknadýr svo sköpuð … “
Við hlið myndar af finngálkni er vísa sem byrjar svo Hvað sér þú meira maður …
„Önnur um frú Vild“
„Frú vild alfréð holt gjör halda …“
„… Heimurinn þykir þýður þá hann er dáblíður.“
„Vísa Þorleifs Þórðarsonar, 40 mannsnöfn“
„Styr, Jón, Stíg …“
„… Snjólf, Bárð, Hrólf, Varða.“
„Svo er sagt að herra Ólafur Haraldsson …“
„… En þeir lofuðu Guð sem á skipinu voru.“
Sex kver.
Pappaband (213 null x 165 null x 8 null) frá 1960. Spjöld og kjölur eru klædd handunnum pappír.
Handritið liggur í öskju með AM 727 I 4to.
Í eldra bandi voru tréspjöld, sem nú eru í öskju með handritinu. Blöð sem lágu í bandinu eru í sérstakri öskju og skráð undir safnmarkinu AM 727 III 4to.
Handritið er skrifað á Íslandi. Kålund taldi handritið vera eiginhandarrit Jóns Guðmundssonar, skrifað 1644, sbr. blað 1r, 16r og 22v( Katalog II 1894:154 ), en Stefán Karlsson telur Jón sjálfan ekki hafa skrifað handritið ( 1983:xciv-xcv ).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. mars 1989.
VH skráði handritið 14. ágúst 2009; lagfærði í janúar 2011. DKÞ skráði handritið 4. nóvember 2003. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 25. október 1888 (sjá Katalog II> , 154-155 (nr. 1825).
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn 1960.