„… jarteikn í augliti sinna lærisveina …“
„… skulum vér þann dag …“
„… og vin[n]a til miðsaptans …“
„… kóngur gyðinga hugði að hann …“
Síðari tíma blaðmerking með bleki 1-4.
Tvö tvinn.
Innri síðurnar í báðum tvinnunum eru mjög slitnar.
Óþekktur skrifari, textaskrift.
Pennaflúraðir upphafsstafir víða.
Band frá 1961 (225 mm x 178 mm x 2 mm). Límt og saumað á móttök í pappakápu með fínofnum líndúk á kili. Handritið liggur í pappaöskju ásamt öðrum AM 696 4to-handritum.
Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu allra brotanna í AM 696 4to liggur í öskju með þeim.
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1500 (sbr. ONPRegistre , bls. 463) en til 15. aldar í Katalog II , bls. 115).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. desember 1991.
Viðgert og sett í sér kápu í Kaupmannahöfn 1961 og yfirfarið aftur þar árið 1991.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.