Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 687 b 4to

Gátur ; Ísland, 1490-1510

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

1 (1r)
Gátur
Efnisorð
2 (1v-2v)
Tvísöngslag
Athugasemd

Með nótum og tilsvarandi texta á latínu.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
2 blöð (170 mm x 117 mm).
Tölusetning blaða

  • Blöð eru ekki tölusett.

Kveraskipan

  • 1 tvinn: blöð 1-2.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 125-140 null x 95 null.
  • Línufjöldi á blaði 1r er 31.

Skrifarar og skrift

Skrifari er óþekktur. Fíngerð og þétt léttiskrift (sjá blað 1r).

Nótur

Nótur að tvísöngslagi á blaði 1v-2v.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Athugasemd Árna Magnússonar um aðföng á neðri spássíu blaðs 1r.
  • Athugagrein fyrri eiganda er á neðri spássíu bl. 1v (sjá um feril).

Band

Band (178 null x 125 null x 5 null).

Spjöld og kjölur eru klædd handunnum pappír. Að innanverðu er kápan klædd með blöðum úr prentaðri bók. Á fremra kápuspjald er skráð safnmark og efnislýsing.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1500 í  Katalog II , bls. 102.

Ferill

Sr. Greipur Þorleifsson á Stað á Snæfjallaströnd átti handritið á 16. öld, svo sem sést af athugagrein hans á blaði 1v: Þessa tvísöngsbók á ég Greipur Þorleifsson ef skal óræntur vera eftir minn föður því hann sagðist hana öngvum gefið hafa síðan eg skilda við hann á Sker(ð)ingsstöðum og ég vissa að þ(e)ir [Fúsi] bróðir minn> og Björn Jónsson höfðu þessa bók í láni. Árni Magnússon fékk handritið frá Guðrúnu Ögmundsdóttur í Flatey árið 1707 (sbr. bl. 1r).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. júlí 1991.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 5. október 2009, DKÞ skráði handritið 16. september 2003. Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 3. september 1888. Katalog II> , bls. 102 (nr. 1715).

Viðgerðarsaga

Yfirfarið í júní 1991.

Ljósmyndað af Jóhönnu Ólafsdóttur í maí 1979.

Viðgert af Birgitte Dall í febrúar 1964.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, ljósmyndari Jóhanna Ólafsdóttir.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn