Byrjar og endar óheilt. Eyður eru á eftir bl. 2, 4, 5. Í handritinu er að finna ýmsar kirkjutilskipanir (heilar eða í brotum), m.a. er fjallað um tíund og skiptitíund (sjá blað 1r, um lögfestuform og forsagnarform við kaup til hjónabands (sjá blað 2), um dóm yfir klerkum, um börn sem biskupa skal og lærða menn sem nefndir verða til prestastefnu (sjá blað 3r), biskupsstatutur og skriftamál (sjá blöð 3-6).
Oddasíður eru tölusettar.
Þrjú kver.
Blöð vantar í handritið. Vantar framan og aftan af.
Svartir pennaflúraðir upphafsstafir eru á blaði 1.
Á efri spássíu blaðs 2r, með hendi skrifarans: Anno domini M cd lxx. nono.
Band frá mars 1976 (170 null x 143 null x 12 null). Spjöld eru klædd fínofnum striga, leður á hornum og kili. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju ásamt eldra bandi.
Eldra band (164 null x 129 null x 5 null).
Spjöld og kjölur eru klædd handunnum pappír. Innanverð spjöld eru klædd pappír úr prentaðri bók. Framan á kápu stendur safnmark ásamt innihaldslýsingu og upplýsingum um að efnið sé úr sömu og bók og AM 688 c 4to og AM 56 8vo.
Handritið er skrifað á Íslandi árið 1479 (sbr. blað 2r). Brot úr sama handriti eru AM 688 c 4to og AM 56 8vo (blöð 1-3).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. apríl 1977.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1976. Eldra band liggur með handritinu í öskju.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.