Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 687 a 4to

Kirkjuskipanir ; Ísland, 1479

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-6v)
Kirkjuskipanir
Athugasemd

Byrjar og endar óheilt. Eyður eru á eftir bl. 2, 4, 5.

Í handritinu er að finna ýmsar kirkjutilskipanir (heilar eða í brotum), m.a. er fjallað um tíund og skiptitíund (sjá blað 1r, um lögfestuform og forsagnarform við kaup til hjónabands (sjá blað 2), um dóm yfir klerkum, um börn sem biskupa skal og lærða menn sem nefndir verða til prestastefnu (sjá blað 3r), biskupsstatutur og skriftamál (sjá blöð 3-6).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
i + 6 blöð + i blöð (151-156 mm x 112-119 mm).
Tölusetning blaða

Oddasíður eru tölusettar.

Kveraskipan

Þrjú kver.

  • Kver I: blöð 1-2, 1 tvinn.
  • Kver II: blöð 3-4, 1 tvinn.
  • Kver III: blöð 5-6, 1 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca (130 null x 95 null)
  • Línufjöldi er ca 27-39.
  • Eyður fyrir upphafsstafi eru víða (sjá t.d. blöð 4v-5r.).

Ástand

Blöð vantar í handritið. Vantar framan og aftan af.

Skrifarar og skrift

  • Skrifari er óþekktur. Léttiskrift, fíngerð og þétt.

Skreytingar

Svartir pennaflúraðir upphafsstafir eru á blaði 1.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á efri spássíu blaðs 2r, með hendi skrifarans: Anno domini M cd lxx. nono.

Band

Band frá mars 1976 (170 null x 143 null x 12 null). Spjöld eru klædd fínofnum striga, leður á hornum og kili. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju ásamt eldra bandi.

Eldra band (164 null x 129 null x 5 null).

Spjöld og kjölur eru klædd handunnum pappír. Innanverð spjöld eru klædd pappír úr prentaðri bók. Framan á kápu stendur safnmark ásamt innihaldslýsingu og upplýsingum um að efnið sé úr sömu og bók og AM 688 c 4to og AM 56 8vo.

Fylgigögn

  • Nákvæm lýsing Jóns Sigurðssonar fylgir í öskju með handritinu.
  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu fylgir einnig með.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi árið 1479 (sbr. blað 2r). Brot úr sama handriti eru AM 688 c 4to og AM 56 8vo (blöð 1-3).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. apríl 1977.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • VH skráði handritið 5. október 2009; lagfærði í janúar 2011.
  •  ÞS skráði 17. september 2001
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar í september 1888. Katalog II> , bls. 102 (nr. 1714).

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1976. Eldra band liggur með handritinu í öskju.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Kirkjuskipanir

Lýsigögn