Blaðsíðumerking með svörtu bleki á annarri hverri rektósíðu 1-59, síðari tíma viðbót.
Bætt hefur verið við blaðsíðumerkingu með blýanti, þar sem áður vantaði, síðari tíma viðbót.
Fimm kver:
Með hendi Bjarna Jónssonar, blendingsskrift. (Sjá Springborg 1969, bls. 228).
Upphafsstafir dregnir örlítið stærra.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Á eftir rímunum er vísa (4 vo) og pennakrot þar sem eiganda bókarinnar er getið: „hier endast Sigurgards Rymur ad kueda og skrifa[.] Þessa bok A Eg Øløf Gudmúnz Døtter enn Jon Biarnar son hefur skrifad þesse Ørd. Ender“, (bl. 30v).
Band frá tíma Jens Jakob Weber c1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír, með prentað mál á spjaldblöðum. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með bleki. Tveir límmiðar eru á kili.
Fastur seðill (195 mm x 145 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: „Sigurðar rímur 16, fengnar 1710 af Sigmundi Sæmundssyni. Og voru þá aftan við sögur af Vilhjálmi sjóð, af Dínus drambláta, af Hrólfi Gautrekssyni, af Sörla sterka, af Fertram og Plato.“
Árni Magnússon fékk handritið frá Sigmundi Sæmundssyni 1710 (sbr. fastan seðil fremst). Ólöf Guðmundsdóttir á Eyri við Seyðisfjörð átti m.a. bókina (sbr. pennakrot aftast (bl. 30v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. mars 1983.
Viðgert í Kaupmannahöfn 1964.