Blaðsíðumerking.
Upphafsstafir hér og þar gegnumstrikaðir með rauðu og grænu.
Númer rímnanna (í fyrirsögnum) rituð með rauðu.
Teikning af dreka, lituð með rauðu og grænu, á neðri spássíu bls. 17.
Band frá 1977.
Fastur seðill (62 mm x 137 mm): „Jarlmanns rímur defect. Flagðadans def. (dunc videtur) Skáld-Helga rímur f. cpl.“
Tímasett til c1550 (sbr. ONPRegistre , bls. 457), en til fyrri hluta 16. aldar í Katalog II , bls. 5. Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 604 a-e og g-h 4to.
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon senda til eignar á Alþingi 1707, frá Pétri Bjarnasyni á Staðarhóli. Jón Ólafsson úr Grunnavík lýsir bókinni sem óinnbundinni og þverhandarþykkri í handritaskrá sinni í AM 477 fol. Eftir það hefur henni verið skipt upp í átta pappahefti.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. maí 1978.
Tekið eftir Katalog II , bls. 8 (nr. 1532). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. DKÞ skráði handritið 28. ágúst 2003.
Bundið af Birgitte Dall í desember 1977. Eldra band fylgir.
Viðgert af Birgitte Dall í febrúar 1965.