„Saga af Góngu Hrölffe“
„Saga af Hälffdäne Brỏnuföstra“
Á bl. 19v er upphaf Jarlmanns sögu og Hermanns. Á bl. 1r (í 1 1/2 dálki) hefur verið lýsing á innihaldi þeirra 20 sagna sem voru í bókinni.
Á. bl. 1r og neðri hluta 19v er útstrikaður texti.
Ein hönd.
Band frá mars 1977.
Fastur seðill (202 mm x 162 mm): „Göngu-Hrólfs saga. Hálfdanar saga Brönufóstra. Úr bókum er ég fékk af síra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði.“
Með hendi sr. Ólafs Gíslasonar á Hofi í Vopnafirði og tímasett til loka 17. aldar, en til síðari helmings aldarinnar í Katalog I , bls. 758.
Árni Magnússon fékk handritið frá skrifara.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 29. janúar 1993.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í mars 1977. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.