Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 562 i 4to

Þorsteins þáttur Austfirðings ; Danmörk, 1690-1710

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-5v)
Þorsteins þáttur Austfirðings
Titill í handriti

Af Þorsteini Austfirðing

Upphaf

Þorsteinn hét maður austfirskur að ætt …

Niðurlag

… og þótti vera hinn mesti gæfumaður. Og lýkst þar frá honum að segja.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
6 blöð (212 mm x 164 mm). Blað 6 er autt.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-5. Blað 6 er ómerkt.

Kveraskipan

Þrjú tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 145 mm x 120 mm.
  • Línufjöldi er 16.
  • Vísuorð á blaði 4r-v eru sér um línu.

Skrifarar og skrift

Með hendi Árna Magnússonar, árfljótaskrift.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (215 mm x 168 mm x 3 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.

Fylgigögn

Fastur seðill (151 mm x 109 mm) með hendi Árna Magnússonar, með upplýsingum um forritið: Þessi þáttur er ritaður eftir hendi síra Jóns í Villingaholti, og stóð hann í bók í folio, er ég fékk af sýslumanninum Jóni Þorlákssyni. Þátturinn með hendi síra Jóns er nú fortærður, eftir að þetta mitt er, qvod ad verba, accuratissimè þar við confererað. Literaturam hefi ég alls staðar forbetrað. Verte. Þessi þáttur var og í bók með hendi Sigurðar á Ferju, eldri en 1683 er ég keypti af nefndum Sigurði 1711 og tók í sundur. Var hann þar auðsýnilega ritaður eftir eins exemplari sem þetta er, en sums stadar miskrifaður. Hirti ég því eigi um hann, og reif hann í sundur.

Uppruni og ferill

Uppruni

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. mars 1978.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt TEI P5 16. júlí 2009 og síðar.
  • DKÞ færði inn grunnupplýsingar 6. janúar 2004.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 6. október 1887 (sjá  Katalog I 1889:716 (nr. 1401). ).

    GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: , Austfirðinga sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Jóhannesson
Umfang: 9
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn