„Saga af viðskiptum Guðmundar hins ríka og þeirra Svarfdæla“
„Sigmundur hét maður son Ketils hins rauða …“
„… hélt Guðmundur virðing sinni allt til dauðadags. Og endar svo þessa sögu.“
Niðurlag annarrar sögu (2 línur) útkrassað efst á blaðsíðu 1r.
Síðari tíma blaðmerking 1-15.
Tvö kver.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Band frá árunum 1772-1780 (204 mm x 163 mm x 6 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
Handritið er skrifað á íslandi. Það er tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 709.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 25. júlí 1975.
Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.
Birgitte Dall gerði við í nóvember 1964.