„Draumur Stjörnu-Odda.“
„Þórður hét maður er bjó í Múla …“
„… og ekki undrast þótt kveðskapurinn sé stirður því að í svefni var kveðið.“
„… af veginum en farið hafa. Þykir mér hættligt í náttmyrkri “
„skulum við biðjast fyrir því að …“
„Skrifað eftir mjög gamalli membrana: Kaupmannahöfn, anno 1686.“
Efni Bergbúa þáttar er hér aðeins u.þ.b. tólf línur framarlega úr þættinum á efri hluta blaðs 10v en neðri hluti blaðs 10 hefur verið skorinn burtu. Upphaf þáttarins hefur því líklega verið á neðri hluta blaðs 10r. Niðurlagið er í AM 564 c 4to.
Uppskrift eftir Vatnshyrnu (sbr. Stefán Karlsson 2000, bls. 336-359 ).
Síðari tíma blaðmerking með blýanti 1-10.
Tvö kver.
Skrifað með hendi Árna Magnússonar; léttiskrift.
Band (215 null x 180 null x 10 null) frá 1976.
Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök; saurblöð tilheyra þessu bandi.
Eldra pappaband (211 null x 164 null x 3 null) er frá ca 1772-1780.
Spjöld og kjölur eru klædd handunnum pappír. Safnmark (og titill) er skráð á fremra kápuspjald. Blár safnmarksmiði er á kili.
Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn 1686 (sbr. Árna Magnússon á blaði 1r) sennilega eftir Vatnshyrnu, handriti frá 14. öld sem nú er glatað (sjá Stefán Karlsson 1970: 2000; 336-359).
Það var áður í sömu bók og AM 564 c 4to sem einnig er talin vera uppskrift Árna Magnússonar eftir Vatnshyrnu.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. apríl 1977.
VH skráði handritið 9. mars 2009; lagfærði í janúar 2011, ÞS skráði 10. desember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. september 1887 Katalog I; bls. 705 (nr. 1377).
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1976. Eldra band fylgir í öskju með handritinu.
Bundið af Matthias Larsen Bloch ca 1772-1780.