„Saga af Hávarði halta og Ísfirðingum“
„Þorbjörn hét maður, hann var Þjóðreksson …“
„… og lúkum vér svo þessari sögu. Þakki þeir sem hlýddu bæði þeim sem skrifaði og las, nema bæði sé.“
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með blýanti, 1-10.
Eitt kver, 5 tvinn.
Handritið er nokkuð notkunarnúið og skítugt. Vatnsblettir einkum á ytri spássíu að ofan.
Talið skrifað af séra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði, fljótaskrift.
Band frá júlí 1976 (210 mm x 189 mm x 9 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Handritið liggur í öskju ásamt gömlu bandi.
Eldra pappaband frá árunum 1772-1780. Titlar og safnmark skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Árni Magnússon fékk handritið hjá séra Ólafi Gíslasyni á Hofi (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. apríl 1977.
Birgitte Dall gerði við og batt í mars 1976. Askjan var gerð í október sama ár.
Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780. Bandið liggur í öskju með handritinu.