Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 552 m 4to

Hallfreðar saga vandræðaskálds ; Ísland, 1650

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-16r)
Hallfreðar saga vandræðaskálds
Upphaf

… gný og eldsgangi, enda var þeim lengra lífs auðið …

Niðurlag

… og er margt manna frá honum komið.

Athugasemd

Stærsti hluti blaða 8v og 11v auð til að merkja eyðu í forriti.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
16 blöð (193 mm x 165 mm). Bl. 16v autt og neðri hluti blaðs 16r.
Tölusetning blaða

Handritið hefur nýlega verið blaðmerkt með blýanti, 1-16.

Kveraskipan

Tvö kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16, 4 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 160-165 mm x 130 mm.
  • Línufjöldi er 28-29.
  • Griporð.
  • Tímatal sögunnar á spássíum.

Skrifarar og skrift

Með hendi Björns Jónssonar á Skarðsá, blendingsskrift undir áhrifum frá fljótaskrift.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (198 mm x 169 mm x 6 mm). Saumað með hamptaumum í pappaspjöld. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Fylgigögn

Fastur seðill (40 mm x 128 mm) fremst: Hallfreðar saga vantar upphafið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Ferill

Bókina hefur átt Oddur Sigurðsson lögmaður og hefur Árni Magnússon líklega fengið hana að láni og ekki skilað (E.G.P. 1998).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. október 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P530. mars 2009 og síðar.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 29. október 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 16. september 1887(sjá Katalog I 1889:696 (nr. 1344) .

    GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar ljósmyndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, gerðar af Jóhönnu Ólafsdóttur 1994.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn