Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 551 d beta 4to

Arons saga Hjörleifssonar og brot úr Þórðar sögu hreðu ; Ísland, 1400-1450

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-6r)
Arons saga Hjörleifssonar
Upphaf

… tíðindum að segja …

Niðurlag

… heilaga staði

Notaskrá

Arons saga Hjörleifssonar 1992 (lokaritgerð í íslenskri málfræði við HÍ).

Baktitill

og lýkur þar sögu Arons Hjörleifssonar.

Athugasemd

Brot.

2 (6v-8v)
Þórðar saga hreðu
Titill í handriti

Saga Þórðar hreðu

Upphaf

[Þ]órður hét maður son Hörða-Kára …

Niðurlag

… að Þorkell kemur …

Notaskrá

ÍF XIV 1959.

Íslendinga sögur III 1987.

Athugasemd

Brot.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
i + 8 + i blöð (207-212 mm x 158-163 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerking Kålunds 1-8 (með rauðu bleki). Einnig eru bl. 1r-6r blaðsíðumerkt 1-11.

Kveraskipan

Eitt kver: 8 blöð, 4 tvinn.

Umbrot

  • Leturflötur 172 mm x 130 mm.
  • Línufjöldi 32-33.
  • Gatað fyrir línum.
  • Eyður fyrir upphafsstafi og fyrirsagnir á 2r-3r, 4r-5r, 6r-v, 7v.
  • Stafur dreginn út úr leturfleti á bl. 7v og 8r.

Ástand

Bl. 1r og 8v eru dökk og máð.

Skrifarar og skrift

Með óþekktri hendi, textaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

Band frá febrúar 1975 (219 mm x 190 mm x 13 mm). Geitaskinn á kili og hornum, spjöld klædd fínofnum líndúki. Saumað á móttök. Saurblöð úr bandi.

Fylgigögn

  • Á föstu pappírsblaði fremst (206 mm x 160 mm) er brot af textanum af 1r skrifað með 18. aldar hendi á rektóhlið: Ad pag. 1. fragm. membr. No 551 defidarantur in 202 in folio ex AM in 4to þá er vel á komed seger Rgnvalldr, þvi at ver höfum þín langa hríd leita farid, þa hlioti þer at lísa yfer erinde vid mig seger Aaron. skamt skal til þess seger Rgnvalldr oc hleypr at Aaroni oc leggr til hans med spioti oc hver þeirra enn höggr annari hendi spiót af skapti fyrer R. oc nu beriaz þeir um hrid aller rskliga. skipter þa sva til at Þorvalldr fer á moti Aaroni. fer þá E. a moti Rognvalldi enn Sigrde moti Bergi. fell Þorvalldr skiott fyrer Aaroni #… ... kemr Aaron þar til B. … langt lidveitzlu etc p. 2. NB forte er Eigli þotti #kand ey læses. ere 4 a 5 ord.
  • Fastur seðill (64 mm x 150 mm) með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um feril á rektóhlið: Af Arone Hirleifssyne fragment af Þordi hredu (framanaf) hefur vered eign Skallholltz kirkiu eda Mag. Bryniolfs helldur.
  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til fyrri hluta 15. aldar (sbr. Louis-Jensen 1977:11 ), en Kålund tímasetti til c1400 ( Katalog (I) 1889:692 ).

Ferill

Handritið var í eigu Skálholtskirkju eða Brynjólfs Sveinssonar biskups (sjá seðil og AM 435 a 4to, 84v).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 23. júlí 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS endurskráði 20. janúar 2009 og jók við síðar.
  • ÞSskráði 10. október 2002.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 9. september 1886(sjá Katalog I 1889:692-693 (nr. 1331) .
  • GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í febrúar 1975. Eldra band fylgir.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, teknar af Jóhönnu Ólafsdóttur í janúar 1991.
  • Negatíf filma á Stofnun Árna Magnússonar frá 1991 (askja 367).

Notaskrá

Höfundur: Loth, Agnete
Titill: Et ituklippet papirhåndskrift af Þórðar saga hreðu,
Umfang: s. 307-326
Höfundur: Louis-Jensen, Jonna
Titill: , Kongesagastudier: Kompilationen Hulda-Hrokkinskinna
Umfang: XXXII
Höfundur: Kjeldsen, Alex Speed
Titill: , Filologiske studier i kongesagahåndskriftet Morkinskinna
Umfang: Supplementum 8
Höfundur: Ward, Elizabeth I.
Titill: Gripla, Completing Þórðar saga hreðu
Umfang: 27
Titill: , Kjalnesinga saga
Ritstjóri / Útgefandi: Jóhannes Halldórsson
Umfang: XIV
Höfundur: Jóhanna Katrín Friðriksdóttir
Titill: Gripla, Ideology and identity in late medieval northwest Iceland
Umfang: 25
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Småstykker 10. En konjektur til Áróns saga,
Umfang: s. 412-414
Titill: Biskupa sögur
Umfang: I-II
Lýsigögn
×

Lýsigögn