Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 548 4to

Vilhjálms saga sjóðs ; Ísland, 1543

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-39v)
Vilhjálms saga sjóðs
Athugasemd

Upprunalega hefur verið hætt að skrifa söguna á bl. 39:4. Niðurlagi er síðar bætt við (í framhaldi af bl. 36v) á bl. 37 og 38, sem eru innskotsblöð. Sagan endar á bl. 38r:5.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
39 blöð (). Bl. 30 og 36 hafa aldrei verið jafnbreið og önnur blöð handritsins.
Umbrot

Ástand

  • Allmörg blöð eru götótt, þar sem bókfellið er byrjað að fúna.
  • Bl. 37-38 eru skrifuð á uppskafning.

Skreytingar

Leifar af lituðum fyrirsögnum.

Leifar af lituðum upphafsstöfum.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Bl. 37-38 innskotsblöð, skrifuð í byrjun 17. aldar á uppskafning af latnesku helgisiðahandriti.
  • Athugasemdir víða á spássíum, sumar með hendi skrifarans.
  • Á bl. 9r nm. er samtímaathugasemd: nv ellur at i bianeyar vog ok ennur ſuark ſaman y ſvndinv.
  • Á bl. 30r, neðri spássíu, með hendi skrifarans: Anno domini Mdxliij, sem gefur til kynna hvenær handritið var skrifað.
  • Á bl. 38 og 39 eru aðallega almennar athugasemdir, pennakrot o.þ.h.
  • Bl. 38 (sem er að mestu autt): 1) Athugasemd um söguna. 2) vísa. 3) Eitt erindi úr Barböru rímum. 4)Anno MDCXCVIII ferða|ðiz þessi boc til noregs ok | nockorar vikr ſtaldraði v | a Stangalandi i Carmſundi. 5) Pennakrot sem virðist innihalda ártalið 1651.
  • Bl. 39: 1) Minnst á fyrirhugaða afskrift handritsins á pappír. 2) sea Tummas a kueid 3)haldo Bonde y garpsdal liedi mier bok þeſſa oc er nodlendſk.

Band

Handritið er fest í kápu úr selskinni.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað 1543 (sjá spássíu 30r).

Ferill

Bókin virðist hafa verið í Noregi um tíma.

Sr. Tómas hefur verið eigandi hennar. Halldór bóndi í Garpsdal einnig og tekið er fram að bókin sé norðlensk (sjá spássíugreinar bl. 38 og 39).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 1. nóvember 1993.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 688-689 (nr. 1324). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 13. ágúst 2001.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í október 1978.

Notaskrá

Titill: Late Medieval Icelandic romances IV: Vilhjálms saga sjóðs. Vilmundar saga viðutan,
Ritstjóri / Útgefandi: Loth, Agnete
Umfang: 23
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Kapitan, Katarzyna Anna
Titill: Opuscula XVI, Dating of AM 162 B a fol, a fragment of Brennu-Njáls saga
Umfang: s. 217-243
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Bókagerð Ara lögmanns Jónssonar, Gripla
Umfang: 19
Lýsigögn
×

Lýsigögn