„Sagan af nokkrum landnámsmönnum Sunnlendinga sérdeilis Þorgils Þórðarsyni kölluðum Orrabeinsfóstra og nokkrum Flóamönnum.“
„Haraldur kóngur Gullskeggur réð fyrir Sogni …“
„… föður Hákonar, föður Jóns. Og lýkur svo sögu þessari.“
Upprunaleg blaðsíðumerking á rektósíðum 1-67.
Sex kver.
Handritið er blettótt vegna rakaskemmda.
Með hendi Einars Eyjólfssonar (sjá Agnete Loth 1967), en Kålund telur vera hönd séra Þórðar Jónssonar í Hítardal, blendingsskrift.
Fyrirsögn með stærra letri og upphafsstafur örlítið pennaflúraður (1r).
Pennakreyttir upphafsstafir, margir með pennadregnum laufformum, andlit teiknuð inn í belgi sumra (2v, 4r-v, 10r-v, 11r-v, 13v, 14v, 18r, 20r, 24r-v, 26r, 28r-v, 30v, 31v, 33v og víðar).
Upphafsstafur síðutitils stundum pennaflúraður (sjá til dæmis bl. 23v, 29v, 30r, 32v).
Árni Magnússon segir handritið úr bók frá Skarði á Skarðsströnd sem fyrrum hefur verið eign séra Þórðar Jónssonar í Hítardal (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. nóvember 1975.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í september 1975. Eldra band frá 19. öld fylgir, þó ekki það sem Kålund nefnir.