Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 507 4to

Reykdæla saga ; Ísland, 1675-1700

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-72v)
Reykdæla saga
Titill í handriti

Saga af Vémundi og Vígaskúta

Upphaf

Þorsteinn höfði hét maður …

Niðurlag

… að fara til Ölvis hins …

Athugasemd

Niðurlag hefur upprunalega vantað í handritið og hefur líklega verið svo í forriti þess.

Niðurlagi sögunnar hefur verið bætt við á bl. 72r-v.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 72 + i blöð (200 mm x 155 mm). Bl. 71v er autt og 72r-v upprunalega autt.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-72.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 140-145 mm x 115 mm.
  • Línufjöldi er 18-20.
  • Griporð.

Ástand

Leturflötur hefur dökknað og blek smitast í gegn, texti er þó skýr.

Skrifarar og skrift

Bl. 1-71r með óþekktri hendi, fljótaskrift.

Bl. 72r með hendi Árna Magnússonar, árfljótaskrift.

Bl. 72v með hendi skrifara Árna Magnússonar, fljótaskrift.

Skreytingar

Örlítið pennaflúraðir upphafsstafir sums staðar og sumir feitletraðir (sjá til dæmis bl. 1r, 3r, 23v, 69v).

Örlítið pennaflúr niður úr griporðum.

Band

Band frá árunum 1880-1920 (200 mm x 164 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum. Safnmarksmiði á kili. Saurblöð tilheyra bandi.

Eldra band var með bókfellsklæðningu úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600, með brotum úr Mannhelgi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til loka 17. aldar í  Katalog I , bls. 669.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. júlí 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS jók við samkvæmt reglum TEI P5 11. febrúar 2009 og síðar.
  • ÞS endurskráði 1. október 2001.
  • ÓB skráði í Sagnanet.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 25. júní 1887(sjá Katalog I 1889:668 (nr. 1277) .

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: , Ljósvetninga saga með þáttum. Reykdæla saga ok Víga-Skútu. Hreiðars þáttr
Ritstjóri / Útgefandi: Björn Sigfússon
Umfang: 10
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: AM 561 4to og Ljósvetninga saga, Gripla
Umfang: 18
Titill: Ljósvetninga saga,
Ritstjóri / Útgefandi: Björn Sigfússon
Umfang: X
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Reykdæla saga

Lýsigögn