„Saga af Króka-Ref. I. Capitulo“
„Á dögum Hákonar kóngs Aðalsteinsfóstra bjó sá bóndi …“
„… Og er margt göfugra manna frá honum komið.“
Og lúkum vér þar sögu Króka-Refs.
„Grænland var byggt af Eiríki hinum rauða …“
„… Þessi saga finnst miklu lengri á þeim gömlu bókum heldur en hér er rituð etc.“
Upprunaleg blaðsíðumerking 1-76.
Með hendi Jóns Torfasonar, fljótaskrift.
Band frá árunum 1880-1920 (214 mm x 170 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum. Blár safnmarksmiði á kili. Saurblöð tilheyra bandi.
Eldra band var með bókfellsklæðningu úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600 með brotum úr reglum um sjúkraheimsóknir presta og greftrunarsiði.
Tveir fastir seðlar fremst með hendi Árna Magnússonar:
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 668.
Handritið er skrifað eftir bók með hendi Jóns Erlendssonar í Villingaholti sem var í eigu Ulriks Christians Gyldenløve (sbr. seðil). Það mun vera AM 160 fol. (sbr. Katalog I:668).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. október 1975.