„Hér byrjast Kjalnesinga saga einkum af Búa auknefndum hundi“
„Helgi bjóla, son Ketils flatnefs, nam Kjalarnes …“
„… er komin mikil ætt.“
Lúkum vér þar Kjalnesinga sögu.
„Saga af Jökli Búasyni á að fylgja Kjalnesinga þætti um Búa“
„Jökli þótti nú illt verk sitt …“
„… og lýkur svo frá honum að segja.“
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-31.
Bl. 1r-23r með hendi séra Ketils Jörundarsonar, síðléttiskrift.
Bl. 24r-31r með óþekktri hendi, síðléttiskrift.
Band frá 1880-1920 (202 mm x 171 mm x 7 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum.
Saurblöð tilheyra bandi.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600. Á því eru brot úr Mannhelgi.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 668, en virkt skriftartímabil Ketils var á árunum 1620-1670.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. maí 1975.