„Hér byrjast Íslendinga saga, kölluð Njála“
„Mörður hét maður er kallaður var gígja …“
„… Og ljúkum vér þar Brennu-Njáls sögu.“
Tuttugu kver.
Með hendi Ketils Jörundssonar (sbr. seðil). Síðléttiskrift.
Band (222 null x 190 null x 45 null) er frá því í apríl 1970.
Spjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi er á hornum og kili. Saumað á móttök. Ytri saurblöð tilheyra þessu bandi.
Rifrildi úr eldra bandi við fremra saurblað.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til ca 1620-1670, en til 17. aldar í Katalog I , bls. 654.
Árni Magnússon fékk handritið hjá séra Þorvarði Magnússyni á alþingi 1704. Um tíma var það í vörslu Jóns Magnússonar, en kom aftur til Árna 1723 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. apríl 1975.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í apríl 1970.