Framan við er trúarjátning.
Textinn á bl. 26 hefur verið skafinn burt.
Upphafsstafir í ýmsum litum, sumir mjög skreyttir og með kynjaskepnum.
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Lagaákvæðin í línum 22-24 á bl. 14r eru viðbætur frá c1450-1550 (sjá ONPRegistre , bls. 446).
Band frá september 1976.
Tímasett til c1400 í Katalog I , bls. 439 (sjá einnig ONPRegistre , bls. 446).
Árni Magnússon fékk handritið hjá Brynjólfi Þórðarsyni. Áður átti það Gísli Magnússon (sbr. AM 435 a 4to).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. desember 1979.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í september 1976. Eldra band af AM 158 a og b 4to fylgir í öskju með báðum handritunum.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.