Tvídálka.
Upphafsstafir í mörgum litum og sumir mikið skreyttir, tveir með myndum af kóngum (bls. 4, 13, 129 og 173).
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Teikning af tveimur mönnum, annar með öxi (bls. 29).
Spássíugreinar frá ýmsum tímum:
Tímasett til um 1350 (sjá ONPRegistre , bls. 444 (sjá einnig tímasetningar á viðbótum)), en til 14. aldar í Katalog I , bls. 416.
Séra Magnús Hávarðsson á Desjarmýri átti handritið, en Þorsteinn Sigurðsson fékk það á Austfjörðum árið 1711. Síðar barst það í hendur Árna Magnússonar, en hann lánaði það Páli Vídalín lögmanni og fékk það aftur frá honum 1723 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. september 1980.