„Meditationes qvædam de curis episcopalibus circa rem literariam in Islandia inprimis adhibendis qvas Nobilissimi ac Eruditissimi Domini Dni Gislonis Magnæi …“
„Vel mætti til vera historía um prentverkið …“
„um eilíft sumar óendanlegra gæða.“
„Hafniæ Die orastino Inaugurationis Ejus Episcopalis Anno Domini, aera vulgari MDCCLV. Cultor et servus observantissimus Johannes Olavius.“
Íslenski titillinn er á bl. 9r en á undan fer tileinkun og inngangur að ritgerðinni.
Ritgerð samin í Kaupmannahöfn 1755 handa Gísla Magnússyni Hólabiskupi (sbr. titilsíðu á bl. 1r og bl. 2v (sbr. einnig Jón Helgason 1926:270-273 )).
„Vonum víst að muni / víslega biskup Gísli …“
Vísan er átta ljóðlínur.
„Tractatus de re antiqvaria seu De Scientia Antiqvitatum Literaria …“
Uppkast að þessari ritgerð er í AM 998 4to og JS 124 fol (sbr. Jón Helgason 1926:313 ).
„Ut lectori patescat causa cur hæc de studio Antiqvitatum …“
„… ætatis vero sexagesimo, semi-completo.“
Ritgerð samin í Kaupmannahöfn 1765.
„Um fornmanna hauga nokkra, kumla og dysjar á Íslandi og í Noregi. Einnig um fornmanna fé í haugum fundið í Ísafjarðarsýslu“
Eftirrit er í JS 124 fol.
„Vestan fram við Ísafjarðardjúp …“
„… og jafnvel þó sem alin hafi ei verið stærri.“
Ritgerð líklega samin 1753. Svo virðist sem Jón hafi sjálfur snúið þessari ritgerð á dönsku og var hún prentuð í Antiqvariske Annaler II, 1815:159-192 , en handritið mun vera glatað eftir því sem best er vitað.
„Munnmæli eru um tröllaverk í nokkrum stöðum á Íslandi …“
Nokkrar smágreinar um tröll, hauga, steina, krossa og álfa. Sumar greinarnar eru jafngamlar ritgerðinni á undan en aðrar eru frá því um 1773.
Ellefu kver.
Blettur efst á bl. 1 en skemmir ekki textann.
Eiginhandarrit Jóns Ólafssonar úr Grunnavík, fljótaskrift.
Bókahnútur á bl. 21v.
Viðbætur skrifara, athugasemdir og efnisorð eru allvíða á spássíum.
Band frá 17. febrúar 1984 (339 mm x 235 mm x 18 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Leifar af rauðu innsigli á bl. 52r.
Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn ca 1753-1773.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. júlí 1985.