„Þáttur af Auðuni Íslending. Úr sögu Haralds Sigurðarsonar harðráða“
„Maður hét Auðun, íslenskur að ætt …“
„… Frá þessum Auðuni er kominn Þorsteinn Gyðuson.“
Endir þáttar Auðunar.
„Þáttur Þorvarðs krákunefs Íslendings.“
„Þorvarður hét maður, vestfirskur að kyni …“
„… kappsiglingar skyldi þreyta.“
Úr Flateyjarbók, næst á undan Stúfs þætti.
„Svo bar til einn tíma að Haraldur konungur kom þar sem þeir höfðu barist Tryggvi son Ólafs konungs …“
„… það mun hann hljóta og þykja mesti ágætismaður.“
„Þáttur Stúfs Kattarsonar Íslendings“
„Stúfur hét maður …“
„… er kölluð er Stúfsdrápa eður Stúfa.“
Úr Heimskringlu. Hefst í 75. kafla miðað við útgáfu Hins íslenzka fornritafélags og endar í 98. kafla.
„Játvarður Aðalráðsson var kóngur í Englandi …“
„… föður Inga konungs og Skúla hertoga.“
Endir Haralds sögu.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar, 1-8.
Eitt kver: 8 blöð, 4 tvinn.
Líklega með hendi Ólafs Gíslasonar á Hofi í Vopnafirði, fljótaskrift.
Band frá ágúst 1974 (333 mm x 228 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi. Handritið liggur í öskju með gömlu bandi.
Gamalt pappaband klætt handgerðum pappír frá 1772-1780 fylgir. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Spjaldblöð úr prentaðri bók. Blár safnmarksmiði á kili.
Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um band og forvörslu.
Bókin sem handritið tilheyrði var í eigu Sigurðar Jónssonar lögmanns (sbr. bl. 1r í AM 217 a fol.).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. júlí 1975.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í ágúst 1974.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780. Það band fylgir í öskju með handritinu.