Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 165 e fol.

Harðar saga ; Ísland, 1635-1645

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-21r)
Harðar saga
Titill í handriti

Saga af Hörð og hans fylgjurum þeim Hólmverjum

Upphaf

[Á] dögum Haralds hins hárfagra …

Niðurlag

… jafnmargir í hefnd verið drepnir sem eftir Hörð

Baktitill

og lúkum vér svo Hólmverja sögu.

Athugasemd

Bl. 5 autt til að tákna eyðu í texta.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki: Dárahöfuð með 4 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir (IS5000-02-0165e_2r), bl. 2712-1520. Stærð: 105 x 57 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 71 mm.

    Mótmerki: Fangamark VM (IS5000-02-0165e_4v, sjá líka IS5000-02-0165e_6v), bl. 13-468-1116-19. Stærð: 11 x 22-24 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 23 mm.

    Notað frá 1626 til 1646.

Blaðfjöldi
21 + i bl. (292 mm x 185 mm). Bl. 21v er autt.
Tölusetning blaða

Handritið er blaðmerkt 1-21.

Kveraskipan

6 kver:

  • I: spjaldblað og fremra saurblað (2 blöð)
  • II: bl. 1-2 (1 tvinn)
  • III: bl. 3-6 (2 tvinn: 3+6, 4+5)
  • IV: bl. 7-16 (5 tvinn: 7+16, 8+15, 9+14, 10+13, 11+12)
  • V: bl. 17-20 (2 tvinn: 17+20, 18+19)
  • VI: aftari saurblöð og spjaldblað (3 blöð)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 245-250 mm x 140-145 mm.
  • Línufjöldi er 40-42.
  • Eyða fyrir fyrsta upphafsstaf.
  • Bendistafir (v) á spássíum til að merkja vísur í texta.

Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Gissurarsonar, léttiskrift (bl. 21v viðbót með annarri hendi, fljótaskrift).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Bl. 5 innskotsblað til að tákna eyðu í texta.
  • Bl. 21 innskotsblað með hendi skrifara Árna Magnússonar, líkast til Þórðar Þórðarsonar, aðeins skrifað á rektósíðu.
  • Skýringar með hendi skrifara á spássíum.

Band

Band frá 1772-1780 (299 mm x 192 mm x 8 mm). Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.

Fylgigögn

Fastur seðill fremst með hendi Árna Magnússonar: Hólmverja saga. Með hendi Jóns Gissurssonar úr bók (eldri en 1646) er ég fékk af séra Högna Ámundasyni.

Uppruni og ferill

Uppruni

Ferill

Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá séra Högna Ámundasyni (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 1. október 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • EM uppfærði vatnsmerkin og skráði kveraskipan 26. maí 2023.
  • ÞÓS skráði 24. júní 2020.
  • ÞS skráði 5. janúar 2009.
  • DKÞ færði inn grunnupplýsingar 6. nóvember 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 5. janúar 1886(sjá Katalog I 1889:136 (nr. 238) .

Viðgerðarsaga

Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Antiquités Russes
Ritstjóri / Útgefandi: Rafn, C. C.
Höfundur: Slay, Desmond
Titill: , The manuscripts of Hrólfs saga kraka
Umfang: XXIV
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Harðar saga

Lýsigögn